fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Er skynsamlegt að hækka veiðigjöld? Svarið er já. Það er raunar ekki bara skynsamlegt heldur löngu tímabært. Er skynsamlegt að huga sérstaklega að því hvernig byrðunum er dreift ef gefur á bátinn? Svarið er já. Ef það eru einhver bök sem eru breið í íslensku samfélagi þegar maður horfir á hagnað, þegar maður horfir á aðra hluti, þá er augljóst að sjávarútvegurinn getur tekið meiri þátt í að fjármagna útgjöld í samgöngumálum um landið o.s.frv., þannig að það er skynsamlegt. Ef í spurningu hv. þingmanns felst hvort ég myndi styðja þá leið að sjávarútvegurinn sjálfur myndi meta það á hverjum tíma hvað hann væri tilbúinn að borga fyrir aðgang að auðlindinni með einhvers konar útboðsfyrirkomulagi sem myndi leiða af sér upphæð veiðigjalda, þá er ég áhugasamur um það, já. Þá værum við ekki að takast á um það hver rétta upphæðin væri heldur myndi sjávarútvegurinn sjálfur verðleggja aðganginn að auðlindinni. Við erum ekki komin þangað í stefnumörkun eða umræðu en það væri fróðlegt að heyra sjónarmið þingmannsins til slíkra leiða, sem hafa oft verið ræddar á undanförnum árum, ef hann hefur áhyggjur af því að sjávarútvegurinn beri þetta ekki vegna óvissu í alþjóðaumhverfinu eða af öðrum ástæðum. Væri þá slík markaðsleið hugsanlega eitthvað sem við ættum að skoða í sameiningu?