fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður svaraði engu sem sneri að ferðaþjónustunni. En ég vil vekja athygli á því að í Bæjarins bestu er haft eftir Gylfa Ólafssyni, sem er formaður stjórnar í Fjórðungsþingi Vestfjarða, ef ég fer rétt með hvað samtökin heita, með leyfi forseta:
„Samtök sjávarútvegssveitarfélaga eru byrjuð að gera greiningar á þessu,“ — þ.e. hækkun veiðigjaldsins — „eins og Vestfjarðastofa, og vonandi ekki langt að bíða þar til hægt er að sýna fram á hvernig aðgerð sem þessi komi til með að líta út í reynd fyrir Vestfirði.“ — það er nefnilega ekki búið að því — „Það verður því að gera þá kröfu til stjórnvalda að sjávarplássin á Vestfjörðum með misstórar útgerðir og vinnslu verði ekki meðafli þegar veiðigjaldatrollið er dregið inn. Það er ansi súrt í broti að meðalstórar útgerðir hafni í skotlínu þessa hráskinnaleiks stórútgerða og ríkisvaldsins. Ég hef því átt samtöl við ráðherra málaflokksins sem hefur sagt mér að hlustað verði á þessi sjónarmið við áframhaldandi vinnslu málsins.“ — Og ég vona að það verði gert.
Hann lokar með því að segja að þegar skattkerfisbreytingarnar séu skoðaðar komi þær nær allar hlutfallslega illa niður á Vestfjörðum. Og þá verður hann foj af því að á bak við svona orðskrúð, um réttlæti og markaðslausnir og hvað eina, þá er þetta bara hækkun á sköttum. Svo þarf einhver að borga skattana. Hann er bara einn af fjölmörgum sem segir: Þetta hefur ekkert verið skoðað og ég hef áhyggjur af litlu og meðalstóru útgerðunum, fiskvinnslunni þar sem ég bý. Þetta eru Vestfirðir. Ég veit ekki hvort breiðu bökin eru þar.
Þetta er bara staðreynd mála. Ég spyr aftur — og hv. þingmaður svaraði því bara mjög skýrt að honum finnst mjög gott að leggja skatt á útgerðirnar sem kemur hlutfallslega verst niður á Vestfjörðum, það er alveg skýrt og takk fyrir það svar — um ferðaþjónustuna: Er skynsamlegt að fara í aukna skattlagningu við þessar aðstæður núna?