156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:18]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Svarið varðandi ferðaþjónustuna er já. Ég styð áform ríkisstjórnarinnar í þeim efnum en undirstrika að þar er talað um að hafa samráð við ferðaþjónustuna um útfærsluna. Sú útfærsla sem þingmaðurinn talar fyrir, náttúrupassi — ég get ekki séð að það sé einhvern veginn fyrsti kostur og hvað þá eini kostur í þessu heldur þvert á móti að talað hafi verið um svokallað komugjald ef ekki næst samstaða um aðrar leiðir. Hins vegar er ég nýbúinn að fara um Vestfirði og ræða við sveitarfélög þar og á Vesturlandi og ef þingmaðurinn vill víti til varnaðar um hvernig hægt er að standa eða ekki standa vel að undirbúningi á nýrri gjaldtöku þá nefndi mjög margt sveitarstjórnarfólk hve svokallað innviðagjald á skemmtiferðaskip kom hratt til sögunnar og án nokkurra greininga og miklar áhyggjur á Vestfjörðum af afleiðingum af afbókunum fram í tímann, sérstaklega tvö ár fram í tímann núna. Ég sé ekki betur en það að setja áform um veiðigjöld í samráðsgátt, fá upp þá umræðu jafnvel áður en málið kemur til kasta þingsins, eins og við erum vitni að núna, muni leiða til þess að myndin skýrist, greiningar verði fleiri, áhrifin skýr. En já, ég stend á því fastar en fótunum að útgerðin getur vel staðið undir þessari breytingu á veiðigjöldum sem er afnotagjald vegna nýtingar á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar og þó fyrr hefði verið.