fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Við erum að ræða fjármálaáætlun. Ég vek athygli á því, og ég held að þetta sé eina skiptið, að hæstv. ráðherra er ekki viðstaddur og reyndar er það þannig að hæstv. ráðherra hefur farið úr húsi. Það þýðir einfaldlega, virðulegi forseti, að við bíðum. Það hefur væntanlega eitthvað komið upp á hjá hæstv. ráðherra og við bíðum eftir að hæstv. ráðherra komi hingað aftur vegna þess að við erum hér til að eiga orðaskipti við hann. Það er ekki boðlegt gagnvart þjóðinni að við séum hér að tala um þetta mikilvæga mál og hæstv. ráðherra er ekki í húsi. Hann ætti auðvitað að vera hér og taka andsvör við hv. þingmenn. Látum það vera. En hæstv. ráðherra verður að vera viðstaddur þessa umræðu. Ég fer fram á það, virðulegi forseti, að við gerum hlé á fundi þangað til hæstv. ráðherra kemur í hús.