156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég get ekki annað en tekið undir með hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þetta er ankannalegt. Auðvitað kunna að vera skýringar, það kann eitthvað að hafa komið upp á sem orsakar þetta. Það er auðvitað ekki eins og þessi umræða komi óvænt upp, hún hefur verið áformuð nú um nokkra hríð. Og hæstv. ráðherra er mættur enda talsmenn flokkanna í sínum ræðum núna. Ég ætlaði bara að hrósa fyrrverandi fjármálaráðherrum fyrir þaulsetu þeirra hér við þetta tilefni. Það er því gott að hæstv. ráðherra er mættur aftur í salinn.