156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:22]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Hér við upphaf þessarar umræðu um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, hina fyrstu, vil ég leggja nokkur orð í púkk. Það má segja að skatta- og gjaldafaraldur geisi í þessari fyrstu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Það kom mér hreinlega á óvart — svona í ljósi þess með hvaða hætti fyrirsvarsmenn ríkisstjórnarinnar tjáðu sig í aðdraganda kosninga og sérstaklega þegar var búið að hnýta saman þá ríkisstjórn sem nú er við völd og þeirra orða sem þar voru látin falla á kynningarfundum og þar fram eftir götunum af fyrirsvarsmönnum flokkanna — að þetta séu skilaboðin sem nú eru dregin upp: Stóraukin gjaldtaka, stórauknir skattar. Eins og það er orðað, með leyfi forseta:

„Tækifæri eru til staðar til að nýta núverandi tekjustofna til frekari tekjuöflunar …“

Þetta er ekkert annað en bara enn meiri vinstri skattar hjá enn einni vinstri stjórninni. Hvernig lentum við á þessum stað, sjávarútvegurinn undir — ja, ég leyfi mér að kalla það árás. Það er ekkert annað en árás þegar á að hækka tiltekið gjald um 100% með einu pennastriki, gjald sem hafði verið talað um á þeim nótum og hæstv. forsætisráðherra, sem er ekki í salnum en kemur hér á eftir, var alveg heiðarleg með það í aðdraganda kosninga að kæmist ráðherrann og flokkur hennar til valda þá væru áform uppi um að hækka veiðigjaldið. En hvernig var þeim áformum lýst? Þeim var lýst þannig að hækkun veiðigjalda kæmi til í nánu samstarfi við hagaðila yfir tíu ára tímabil. Það gefur nú töluvert meira svigrúm til að bregðast við og ræða hlutina þannig að skynsemi fáist í þá heldur að keyra í gegn þá hækkun með einu pennastriki strax, að málinu mjög lítt ræddu. Svo tekur steininn úr þegar við sjáum með hvaða hætti samráðið, sem blasir einhvern veginn við að er enn eitt sýndarsamráðið, liggur núna fyrir. Umsagnarfrestur um þetta risamál er að renna út í samráðsgátt stjórnvalda í dag þar sem sveitarfélög, útgerðir, vinnslur, allir hagaðilar koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Ég held að allir hafi sagt: Heyrðu, eru menn gengnir af göflunum í þessari ríkisstjórn að ætla okkur svona fáa daga til að taka afstöðu til og greina svona risamál eins og þetta?

Svo versnaði þetta þegar kom á daginn að til að mynda sveitarfélög landsins fengu ekki umbeðin gögn til að glöggva sig á málinu. Menn áttu bara að senda inn umsagnir einhvern veginn út í bláinn. Hvað er þetta? Svo mætir hæstv. atvinnuvegaráðherra í viðtal og segir: Þetta mál mun klárast í vor. Það er ekki komin fram ein einasta athugasemd, umsögn eða neitt á þeim tímapunkti, að þetta mál muni klárast í vor. Þetta teiknar upp mynd sýndarsamráðs sem er ónotaleg, svo vægt sé til orða tekið, þegar undir er jafn mikilvæg atvinnugrein og útgerðin er, og vinnsla, hér á landi.

Hverjir eru þetta sem eru að láta heyra í sér? Ég gef mér að allir þingmenn í salnum hafi fengið símtöl, tölvupósta og skilaboð varðandi þetta síðustu daga. Þetta eru litlu og millistóru útgerðirnar að mestu leyti, vinnslurnar, sveitarfélögin í öngum sínum, meira að segja sveitarfélög sem er stýrt af sömu fulltrúum og mynda þessa ríkisstjórn. Slík sveitarfélög rak í rogastans. Skilaboðin sem berast frá Ísafjarðarbæ eru auðvitað þeirrar gerðar að það er algerlega augljóst að ríkisstjórnin hefur ekki einu sinni talað við sitt fólk í þessum byggðum. Það hefur ekki verið talað við neinn um neitt. Það á bara að keyra þetta mál áfram með einhverjum ofstopa og æsingi á einhverri ímyndaðri bylgju sem ráðherrarnir virðast telja að skili þessu verkefni í mark.

Það kom mér töluvert á óvart í fyrirspurnatíma fyrr í dag að hæstv. fjármálaráðherra, sem er býsna vel lesinn í þessum efnum leyfi ég mér að fullyrða, skuli halda því fram að heildarskattspor sjávarútvegs muni vaxa við þessa aðgerð. Það þótti mér hvorki skynsamleg né góð skilaboð inn í þessa umræðu að svo virtist sem hæstv. fjármálaráðherra hefði kosið að setja kíkinn fyrir blinda augað í þessum efnum og leiða út með því þá niðurstöðu sem málinu hentar skást.

Síðan er auðvitað sérstakt íhugunarefni að hér sé ráðist til atlögu við þessa atvinnustarfsemi með þeim hætti að það sem líklegast er til að verða hlutfallslega verst fyrir eru kvennastörfin í vinnslunni, þau eru enn þá, miðað við þær tölur sem ég sé, að meiri hluta til mönnuð af konum frekar en körlum. Staðan er nefnilega sú að þetta eru orðin ágætlega launuð störf. Það var ekki ímyndin af fiskvinnslu hér áður en staðan í dag er sú að laun í fiskvinnslu eru hærri en til að mynda í mannvirkjagerð. Það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar. Sömuleiðis hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar ef ríkisstjórn valkyrjanna, þessi ríkisstjórn sem er leidd af þremur kvenformönnum samstarfsflokka, hefði vaðið með þessum hætti í kvennastétt sem er sem betur fer orðin ágætlega borguð. Hvað hefur þetta fólk unnið sér til saka? Þetta er gjaldtakan á eina grunnstoð atvinnulífsins og, ég leyfi mér að fullyrða, upptakturinn að minnkuðu heildarskattspori sjávarútvegs á Íslandi.

Svo kemur ferðaþjónustan, sú stoð sem sú atvinnugrein er orðin. Þar skal leggja til atlögu með sama takti og iðulega hefur verið, með litlum fyrirvara, brokkgengum undirbúningi og allt atvikast þetta bara einhvern veginn. Það var haft í flimtingum hér áðan að það ætti að auka skattheimtu um 2.500 milljónir á tiltekinn hóp samfélagsins. Allt eru þetta atriði sem skipta máli inn í heildarmyndina. Heimilin verða fyrir þessu og heimilin verða í rauninni fyrir þessu öllu á endanum með einum eða öðrum hætti. Þetta mun hafa bein áhrif á heimilisbókhald fólksins sem vinnur í vinnslunni sem verður lokað. Fólkið sem starfar í ferðaþjónustunni sem verður undirorpið breyttum rekstrarforsendum eftir innleiðingu þessara hækkuðu gjalda og skatta mun finna breytingar á sínum högum. Það verður minna útsvar til sveitarfélaga af þeim störfum en áður var og öll þau afleiddu áhrif sem slíkt skapar.

Ég sakna þess í þessari fjármálaáætlun, eins og ég sakna í býsna mörgum frumvörpum sem ríkisstjórnin sýnir, að það sé reynt að leggja eitthvert efnislegt mat á afleidd áhrif aðgerðanna. Það er eins og menn sitji við excel-skjalið, þetta sé einhver fasti sem menn telja sig geta dregið eftir einhverjum dálki og það að hækka einn skattstofn, nýta núverandi tekjustofna til frekari tekjuöflunar, eins og þetta er kallað hjá ríkisstjórninni, hafi engin áhrif á neitt annað. Það stenst auðvitað enga skynsemisskoðun og það vita sennilega fáir hér á svæðinu betur en hæstv. fjármálaráðherra. Það bara blasir við. Hæstv. fjármálaráðherra veit að áhrifin eru önnur en þau sem ríkisstjórnin talar fyrir að þau séu. Sú afstaða að stórbreyting í gjaldtöku og skattheimtu hafi engin afleidd áhrif er bara röng. Hún er í rauninni algerlega fráleit þegar maður veltir því fyrir sér hvers lags þekkingu og aðgang að upplýsingum og starfsmönnum til að greina þau gögn og leiða út þeir hafa sem láta þetta út úr sér. Ég hef áhyggjur af því að með þessari fjármálaáætlun sé verið að teikna upp mynd aukinna skatta og gjalda og það muni verða okkur til vandræða á næstu misserum og árum.

Það er, svo ég segi nú eitthvað jákvætt, vissulega jákvætt ef jöfnuður næst í ríkisfjármálunum ári fyrr en áður hafði verið áætlað en ef það á að gerast fyrst og fremst með skattahækkunum þá erum við á vondum stað.