156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[12:33]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og nú erum við að sjá framan í raunverulegar tölur og áætlanir sjálfshólsríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, sem heldur blaðamannafundi um allt og ekkert. Ég vil spyrja hv. þingmann út í þetta, af því að hann hefur bent á afleiðingarnar af því þegar ríkisstjórnir hækka skatta. Eitt kemur náttúrlega bara beint að heimilunum, 2.500 milljóna hækkun skatta. En síðan leggur hv. þingmaður, og hann þekkir þau mál vel, út af því að það eru ýmsar afleiddar afleiðingar af því að hækka skatta á útgerðina — það á bara að ná í einhverja nokkra ríka einstaklinga og allt lífið verður miklu betra — og viðbrögðin hafa verið mjög hörð. Ég vil spyrja hv. þingmann, í ljósi þess að í viðtali í Bítinu var hæstv. fjármálaráðherra spurður beint: Verður einhverju breytt varðandi veiðigjaldið eftir ágjöf útgerðarinnar og sveitarfélaganna? Og svarið var nei. Ég spyr hv. þingmann — ég er ekki að gera hv. þingmann ábyrgan fyrir þessu, það er mjög langur vegur frá enda ber hann enga ábyrgð á þessu: Þegar maður hugsar um málatilbúnaðinn á undanförnum árum hjá þeim flokkum sem nú eru í ríkisstjórn — hvernig finnst hv. þingmanni það samræmast því að segja bara skýrt nei? Við erum í samráðsferli, við erum í umsagnarferli — verður einhverju breytt? Nei.