fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þetta viðtal við hæstv. fjármálaráðherra í Bítinu hafði farið fram hjá mér, ég verð nú bara að hlusta á það núna á eftir. En eins og segir hér í útskrift af því — já, þetta gæti ekki verið skýrara. Þetta er eiginlega með ólíkindum í miðju samráðsferli. Ég verð nú að viðurkenna að þó að ég hafi hér fyrr í dag verið að gagnrýna hversu fáir dagar væru gefnir til samráðs í svona risastóru og flóknu máli þá er þetta kannski nógu langur tími ef það á ekki einu sinni að lesa þetta. Ef niðurstaðan áður en samráði lýkur er sú að ekki eigi í neinu að bregðast við neinu sem þar kemur fram þá er þetta nógur tími. En þá geta menn líka bara sparað sér vinnuna við að senda inn umsagnir, ef þetta er nálgunin. Ég verð nú að viðurkenna að það er auðvitað einhver heiðarleiki í þessu fólginn. Þetta er kannski að einhverju marki, í ákveðnu samhengi, til fyrirmyndar en samt ekki í því samhengi sem við reynum að vinna hér í þinginu, og stjórnvöld almennt. Ég er að reyna að lesa glefsur úr þessu viðtali á meðan ég tala hér og þetta er óvanalega heiðarleg og opin framsetning hvað það varðar að ætla ekki að taka tillit til umsagna. Þetta skýrir kannski af hverju hæstv. ráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, fullyrti í Kastljóssviðtali að frumvarpið yrði klárað í vor. Ég man ekki eftir svona staffírugri yfirlýsingu ráðherra um mál sem er rétt dottið í samráðsgátt stjórnvalda, ekki inn í þingið heldur í samráðsgátt stjórnvalda. Og tímalínan sem er teiknuð upp, þar sem umsagnarfrestur rennur út eftir að síðasti framlagningardagur er um garð genginn — heyrðu, þetta teiknar bara enn einu sinni upp myndina hjá stjórnvöldum: Ég á þetta, ég má þetta. Við gerum þetta bara eins og okkur sýnist, skítt með þau sjónarmið sem koma fram. En ég hlusta á þetta viðtal strax og ég er laus úr pontu.