fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef hv. þingmaður byrjar að hlusta á viðtöl, sem ég hvet hv. þingmann til að gera, vil ég líka hvetja hann til að hlusta á viðtal sem var hér fyrir nokkrum dögum í morgunþætti Rásar tvö. Þar var einn af stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar, sem er áhrifamaður í íslensku þjóðlífi, dr. Þórólfur Matthíasson, sem sagði eitthvað á þá leið að það væri kannski ekki stór munur á því hvort Pólverjar myndu verka fisk á Íslandi eða í Póllandi. Nú er þessi einstaklingur ekki kjörinn fulltrúi en ef þetta eru sjónarmið sem liggja til grundvallar þá verð ég að viðurkenna að manni er algjörlega misboðið. Ég segi fyrir mig að það er mikill styrkur af því að fá gott fólk annars staðar að og ekki síst frá Póllandi, og ég vona að þeir verði hér sem lengst og haldi áfram að láta gott af sér leiða. Hv. þingmaður vísaði líka réttilega til þess og þekkir málið vel varðandi launafólkið sem vinnur í fiskverkun og það virðist vera að dragast upp að menn ætli að koma einhverjum norskum veruleika fram. Ef þær fyrirætlanir ná fram að ganga þá erum við að sjá sama fyrirkomulag og er í Noregi. Mjög mikið af fiskinum er flutt til annarra landa og hann verkaður þar og þær fiskverkanir sem eru til staðar eru ríkisstyrktar. Þar kemur að því sem hv. þingmaður benti réttilega á að það verður að líta á þetta í stóra samhenginu. Þetta kemur fram í fjármálastefnunni: Ef þú ætlar að breyta gerðu það málefnalega, vel ígrundað og með góð gögn. En það er augljóslega ekki það sem er á ferðinni hér.