156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:17]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ábyrg ríkisfjármál og aðhald styður við peningastefnu Seðlabankans og það er ánægjulegt að sjá að fjármálaáætlun styður við þá stefnu og sömuleiðis þá vegferð sem verkalýðshreyfingin á almennum vinnumarkaði fór af stað í í kjarasamningum sem voru undirritaðir á vormánuðum 2024. Þeim samningum var ætlað að styðja við stefnu Seðlabankans um ákveðið aðhald og ábyrgð vinnumarkaðarins við það að ná niður verðbólgu og vöxtum. Hvað þýðir þetta? Mér finnst það stundum gleymast í umræðunni hversu háar upphæðir við erum að ræða í þessu samhengi. Nú eru skuldir heimilanna u.þ.b. 3.200 milljarðar og skuldir atvinnulífsins og fyrirtækjanna töluvert hærri, en bara fyrir heimilin þýðir 25 punkta lækkun á vaxtabyrði heimila tæplega 8 milljarða á ári. Þetta finnst mér vera stóru tölurnar. Þetta finnst mér vera stóru markmiðin sem við þurfum öll að leggjast á árarnar við að ná og í sjálfu sér eitt af helstu verkefnum stjórnmálanna, að ná vöxtum og verðbólgu niður í eðlilegra horf.

Verðbólga hefur farið lækkandi, hún er komin niður í 3,8% en 2,5% án húsnæðis. Þess vegna er auðvitað gríðarlega mikilvægt að styðja líka við aukna uppbyggingu á húsnæðismarkaði til að bæði auka framboð á því húsnæði sem markaðurinn er að kalla eftir, sem er hagkvæmt húsnæði fyrir milli- og lægri tekjuhópana en ekki íbúðir sem hafa verið að koma á markaðinn sem fæstir hafa efni á að kaupa, hvað þá leigja. Það hafa verið stigin stór skref í þeim málaflokki með undirritun viljayfirlýsingar milli verkalýðshreyfingarinnar og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu í Úlfarsárdal sem hefur verið baráttumál verkalýðshreyfingarinnar árum saman. Sá sem hér stendur var í brúnni þar í húsnæðismálunum og uppbyggingunni þar.

Til að ýta undir kaupmátt og velferð, öryggi og velsæld þá skiptir vaxtastigið gríðarlega miklu máli. Við eigum mikið inni í vaxtalækkunum. Eins og ég kom inn á áðan er verðbólgan að mælast 3,8% og stýrivextir eru 7,75%. Ef 25 punkta lækkun á greiðslubyrði heimila þýðir um 8 milljarða lækkun á þeirri greiðslubyrði, bara í samhengi þeirra upphæða sem hafa komið fram á þinginu, þá er auðvelt að margfalda þetta upp. Ef við værum að tala um 1% lækkun á vöxtum á skuldum heimilanna þá værum við að tala um 32 milljarða. Það er þetta sem er í húfi. Þetta eigum við að leggja ofuráherslu á. Ég er auðvitað ánægður með það að fjármálaáætlunin sem slík styður við þessa vegferð til bæði skemmri og lengri tíma. Ég held að það sé líka mikilvægt að taka með í reikninginn að væntingar fólks til lækkunar á verðbólgu og væntingar fólks til þess að þetta verkefni takist og að við náum árangri eru að aukast. Það er líka lykilatriði, og Seðlabankinn hefur bent á það, að hafa einmitt miklar áhyggjur af dræmum væntingum almennings á stjórn efnahagsmála.

Í störfum mínum fyrir verkalýðshreyfinguna þá er það bara þannig að bestu kjarabæturnar sem við getum náð fram fyrir almenning í landinu, hvort sem það eru öryrkjar, eldri borgarar eða millitekjuhópar, ég tala nú ekki um lægri tekjuhópana, er að lækka kostnaðinn við að lifa. Þetta eru mikilvægustu kjarabæturnar, kjarakrónurnar sem við getum samið um. Það er kannski ástæðan fyrir því að verkalýðshreyfingin hefur í ríkari mæli verið að gera samkomulag við ríki sem aðili að kjarasamningum síðustu ár, með lífskjarasamningunum 2019 og sömuleiðis líka kjarasamningunum sem voru undirritaðir á vormánuðum síðasta árs og voru þá langtímakjarasamningar til að styðja við þessi markmið. Þrátt fyrir þetta, að við séum að horfa á fjármálaáætlun, sem í felst töluvert mikið aðhald og auðvitað háleit markmið um að A1-hluti ríkissjóðs verði orðinn hallalaus 2027, og sama má gilda um opinber fjármál á árinu á eftir og þá stöðugleikareglu sem á að styðja við þetta, það er mikill metnaður í þessu og þrátt fyrir að í þessu felist ákveðið aðhald þá er engu að síður verið að setja gríðarlega mikla fjármuni inn í almannatryggingakerfið sem mér finnst löngu kominn tími til að sé gert, sérstaklega í ljósi þess að þessu hefur ávallt verið lofað og ekki hafa nú alltaf efndir fylgt þeim loforðum fyrir kosningar. Þarna eru í rauninni mjög stórar og sanngjarnar breytingar.

Sömuleiðis er líka varðandi hjúkrunarheimilin búið að höggva á ákveðinn hnút milli sveitarfélaganna og ríkisins varðandi fjármögnun og uppbyggingu, það hillir vonandi í jákvæðar fréttir á þeim vettvangi. Það er auðvitað mjög erfitt og mikil áskorun, og ég þekki það sem þátttakandi í að byggja upp almenna íbúðakerfið, að byrja á einhverju núlli. Að byrja á núllpunkti er mikil áskorun, bæði fyrir ríkisstjórn og aðra sem hafa viljað fara í alls kyns átök, hvort sem það er varðandi hjúkrunarheimili eða húsnæðisuppbyggingu.

Þegar öllu er á botninn hvolft þá eru mjög jákvæð mál sem við erum að fara í samhliða aðhaldi. Það eru 7 milljarðar sem eru að fara í endurbætur á vegakerfinu, það á að taka á þessari gríðarlega miklu innviðaskuld sem hefur verið að byggjast hér upp. Svo er fullt af málum eins og aukinn stuðningur til fjölburaforeldra og svo mætti lengi telja. En í stóru myndinni snýst þetta um að ná niður vöxtum og verðbólgu. Það held ég að við sjáum öll. Þetta hefur auðvitað áhrif á verðlag líka vegna þess að fyrirtækin skulda mun meira en heimili gera. Þrátt fyrir yfirlýsingar margra um að háir vextir til fyrirtækja hafi ekki áhrif á verðlag þá sjá það allir sem hafa rekið fyrirtæki, komið að sveitarstjórnarmálum eða slíku að auðvitað eru þetta kostnaðarkrónur sem þarf að mæta, annaðhvort með auknum útgjöldum, hækkun á vöruverði eða öðrum þáttum alveg eins og öðrum kostnaði sem getur hækkað. Þetta styður þessi stefna. Hún styður auðvitað vel við það markmið okkar. Við erum að koma úr hárri verðbólgu þar sem ytri þrýstingur, innflutt verðbólga var auðvitað mjög há og aðrir þættir sem við höfum lítið ráðið við. En í grunninn hefur húsnæðisliðurinn eða húsnæðisverðið verið að keyra hér áfram verðbólgu síðustu ár og auðvitað áratugi. Fjármálaáætlun styður við markmið okkar um að fara í átak í uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og kosta til minna með lægra vaxtastigi til framtíðar.