156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:27]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Hv. þingmaður hefur, eins og þjóð veit, mikla reynslu, sérstaklega af verkalýðsmálunum. Það er styrkur fyrir þingið að fá fólk með slíka reynslu í þingstörfin. Hv. þingmaður ræddi hér mál sem skipta máli. Þau snúa að stöðugleika, lægri verðbólgu, lækkun vaxta og húsnæðismálum. Ég held að ég og hv. þingmaður getum verið sammála í mörgu þegar að því kemur. En það sem ég hefði áhuga á að fá að vita hjá hv. þingmanni, sem er búinn að vera umboðsmaður launafólks um langa hríð, er hvernig honum hugnast og hvort hann styðji skattahækkanir á almenning í landinu. Nú hefur það verið staðfest af hæstv. ráðherra að samsköttunin muni skila 2.500 millj. kr. meiri sköttum, sem þýðir að fólk mun greiða hærri skatta. Hv. þingmaður þekkir auðvitað umbjóðendur sína vel. Mjög mikið af hans umbjóðendum er fólk sem mun þurfa að greiða hærri skatt. Þetta er fólk sem er í sambúð, heimilin í landinu. Ég hefði áhuga á að vita hver skoðun hv. þingmanns er á þessum skattahækkunum og sömuleiðis þeim hugmyndum að láta almenning í landinu og útlendinga greiða fyrir aðgang að náttúrunni okkar. Ástæðan fyrir því að ég spyr er sú að mér finnst það ekki vera alveg í takt við þær áherslur sem ég hef heyrt hjá hv. þingmanni, bæði sem frambjóðanda og forystumanni í verkalýðshreyfingunni og reyndar formanni í langstærsta verkalýðsfélagi landsins ef ég hef rétt fyrir mér. Ég hefði áhuga á að heyra sjónarmið hv. þingmanns, hvort hann styðji þessar skattahækkanir.