156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:29]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir þessa góðu spurningu. Ég hef ekki séð nákvæma útfærslu á því hvaða áhrif þessar skattbreytingar hafa á ákveðna tekjuhópa og það skiptir auðvitað máli. Í stóru myndinni myndi ég segja að það væru ákveðnar breytingar að verða hvað varðar gjaldtöku í ferðaþjónustunni. Ég hef ekki séð endanlega útfærslu á því hvernig nákvæmlega sú gjaldtaka verður og hvort og hversu mikil áhrif hún mun hafa beint á þá hópa sem hv. þingmaður vísar til, sem voru minnir mig félagsmenn í stéttarfélaginu sem ég stýrði. Þegar öllu er á botninn hvolft þá held ég að markmiðin okkar, sem ég kom inn á hér áðan í ræðu minni varðandi heildarmyndina, heildarmarkmiðin, séu að ná niður verðbólgu og sérstaklega vöxtum fyrir heimilin. Eins og ég fór yfir í tölunum er 25 punkta lækkun á vöxtum og heildarskuldum heimilanna í kringum 8 milljarðar. Ég myndi segja að það væri göfugra markmið. Auðvitað vill maður ekki hækka skatta. Það vill enginn hækka skatta en stundum þarf bara að gera hluti sem geta verið óvinsælir, mögulega sársaukafullir fyrir einhverja ákveðna hópa, til þess að ná æðri og betri markmiðum sem skila sér síðan í betri ráðstöfunartekjum og betri lífskjörum fyrir heildina til lengri tíma litið.