156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:33]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að ítreka spurninguna. Ég skal reyna að vera aðeins skýrari í svörum. Samhengið í sjálfu sér er heildarniðurstaðan, sú stefna að reka hallalausan ríkissjóð, sýna ábyrgð í ríkisfjármálum og vinna þannig með peningastefnu Seðlabankans í að ná niður — ja, verðbólgan er komin niður en nú þarf að fara að ná niður vöxtunum. Við eigum töluvert inni þar. Raunvaxtastig er allt of hátt. Ef það þýðir að það þurfi að skattleggja heimilin til að ná árangri þá er ég ekki ánægður með að það sé gert með þessum hætti en ég mun vissulega styðja það ef það hjálpar okkur við að ná heildarmarkmiðum fjármálastefnunnar; stöðugleika, lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Ég er ekkert ánægður með þetta, ekki frekar en hv. þingmaður er ánægður með hækkun veiðigjalds eða aðra þætti, en einhvers staðar þarf að ná jafnvægi. Ég á auðvitað eftir að skoða þetta. Við eigum eftir að fjalla um þessa ráðstöfun betur í fjárlaganefnd og það getur vel verið að ég skipti um skoðun þegar að því kemur.