156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:35]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil aftur byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir góða yfirferð á fjármálaáætluninni sem hér er til umræðu en verð þó að segja að það vekur athygli í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026–2030 að sérstaklega sé tekið fram að staða ríkisfjármála sé enn traust, jafnvel eftir heimsfaraldur og náttúruhamfarir. Í áætluninni segir nánar tiltekið, með leyfi forseta:

„Staða ríkisfjármála er enn traust eftir veigamiklar áskoranir heimsfaraldurs og náttúruhamfara en ýmsir aðrir þættir, s.s. viðhald og uppbygging innviða og öldrun þjóðarinnar, munu fyrirsjáanlega halda áfram að valda þrýstingi á ríkisfjármálin. “

Þetta er sem sagt mat ríkisstjórnar á árangri síðustu ára en er þetta ekki sama ríkisstjórnin og sagði við almenning þegar hún tók við að hún tæki við mun verri stöðu ríkissjóðs en áætlanirnar höfðu gert ráð fyrir? Það eru aðeins 100 dagar síðan það var fullyrt. Hér sjáum við ákveðna mótsögn sem vekur upp spurningu um trúverðugleika og samræmi í málflutningi. Þessi sterka staða ríkisfjármála er fyrst og fremst árangur ábyrgðarákvarðana síðustu ára þrátt fyrir mikil áföll á borð við Covid og eldgos á Reykjanesskaga. Alþingi verður hins vegar að geta fjallað um skýr markmið, mælikvarða og raunverulega stefnu ríkisstjórnarinnar á öllum málefnasviðum til næstu fimm ára en sú mynd birtist ekki í fjármálaáætluninni, engan veginn, og það er alvarlegt. Einhverra hluta vegna hefur fjármála- og efnahagsráðherra gleymt að setja fram markmið og mælikvarða í umfjöllun um áherslur og málefnasvið. Á bls. 113 í fjármálaáætluninni kemur reyndar fram að í mótun sé mælaborð með upplýsingum um markmið og mælikvarða málefnasviðanna. Augnablik. Fjármálaáætlun er þingsályktunartillaga og að baki henni eru lög um opinber fjármál. Þar er því lýst eftir markmiðum og mælikvörðum fyrir einstök málefnasvið og hver eru þau, virðulegur forseti? Jú, það dugar ekki að vísa í mælaborð í vinnslu einhvers staðar uppi í sveit eða Word-skjal í mótun hjá einhverjum starfsmanni ráðuneytisins. Í greinargerð með frumvarpi til laga um opinber fjármál segir m.a. í 5. gr., sem fjallar um fjármálaáætlun: „Um er að ræða eitt af lykilatriðum fjármálaáætlunar.“

Lykilatriði í fjármálaáætlun.

„Í markmiðum um þróun gjalda birtist forgangsröðun og áherslur eftir málefnasviðum fyrir komandi ár. […] Til að forgangsröðun eftir málefnasviðum geti verið nægjanlega markviss er nauðsynlegt að fyrir liggi heildstæð stefnumörkun eftir málefnasviðum, sbr. 20. gr.“ — og hún er svohljóðandi, virðulegur forseti:

„Hver ráðherra setur fram stefnu fyrir þau málefnasvið og málaflokka sem hann ber ábyrgð á til eigi skemmri tíma en fimm ára. Í stefnunni skal lýsa áherslum og markmiðum, þ.m.t. gæða- og þjónustumarkmiðum, um fyrirkomulag, þróun og umbætur á þeirri starfsemi sem fellur undir viðkomandi málefnasvið. Í stefnunni skal gerð grein fyrir hvernig markmiðum verði náð, ábyrgðarskiptingu, tímasetningum, nýtingu fjármuna og áherslum við innkaup. Þá skal gerð grein fyrir fyrirhuguðum lagabreytingum. Stefna fyrir málefnasvið skal vera heildstæð og í samræmi við þau fjárhæðamörk sem fram koma í gildandi fjármálaáætlun.“

Þetta er í lögunum um opinber fjármál. Þetta vantar, virðulegur forseti. Þetta er ekki hér. Við erum að fjalla um grundvallaráætlun stjórnkerfisins um fjármál ríkisins og sveitarfélaga. Alþingi þarf að sjá lögum samkvæmt hvaða mælanlegu markmið liggja fyrir um starfsemi málefnasviða eins og ferðamála, menntamála og hjúkrunarmála. Fjármálaáætlun er því miður ógegnsærri en nokkru sinni. Þar af leiðandi er nánast ógerlegt að átta sig á því hvað ríkisstjórnin ætlar að gera á einstökum málefnasviðum. Hver verða gæðamarkmiðin? Hverjar verða áherslurnar? Allt það sem fjármálaáætlun innihélt á síðasta ári um markmið og mælikvarða er horfið. Það var bara tekið út. Því er ekki hægt að bera saman áætlunina frá því í fyrra og þessa, hvað þá að horfa fimm ár fram í tímann, ekki einu sinni ár.

Skýr markmið eru forsenda þess að Alþingi og almenningur geti metið hvort og hver árangurinn er af ráðstöfun opinbers fjár. Það er skýrt brot á 20. gr. laga um opinber fjármál þar sem kveðið er á um að setja þurfi fram mælanleg markmið. Þetta er í raun lykiltilgangur fjármálaáætlunar, að Alþingi, að við getum áttað okkur á efnislegum áherslum og markmiðum í starfsemi fram yfir næsta fjárhagsár. Ég spyr: Hvernig á að útfæra og mæla ávinning af bættri stýringu innkaupa sem á að skila 27 milljörðum á tímabilinu? Hvaða greiningar liggja fyrir um hagræðingu í tengslum við sameiningar stofnana og nákvæmlega hvernig á að breyta forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu og hvað á það að skila miklu?

Ef við tökum, virðulegur forseti, einstök dæmi má nefna hérna málefnasvið 4, utanríkismál, þar sem í raun og veru kemur ekkert nýtt eða stefnumótandi fram. Í skatta- og fjármálaumsýslu er talað um að bæta verklag rammafjárlagagerðar og styrkja rýni á útgjöld. Á sama tíma er fjármálaáætlunin sjálf orðin rýrari og innihaldið án mælikvarða og tengdra markmiða.

Varðandi nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar er kaldhæðnislegt, virðulegur forseti, að í umfjöllun um málefnasviðið er fjallað um mikilvægi Nýsköpunarsjóðsins Kríu. Það er þó þannig að sama ríkisstjórn hefur samþykkt tillögu hagræðingarhópsins um að leggja niður Nýsköpunarsjóðinn Kríu.

Það er verið að tala hér um sveitarfélög og byggðamál og mikilvægi sameininga sveitarfélaga sem vissulega geta aukið hagkvæmni. En erfitt er að sjá hverjar raunverulegar aðgerðir eru eða að hverju er stefnt og hver aðkoma ríkisins verður.

Varðandi sjávarútvegsmálin langar mig að vekja sérstaklega athygli á því að um málefnasvið 13, sjávarútveg, er tekið fram að ríkisstjórnin muni móta auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu og réttlát auðlindagjöld. Þau ætla að móta stefnu. Gott, ég er sammála því, en þó að stefnan hafi ekki verið gerð er ríkisstjórnin samt búin að tilkynna um hækkun á veiðigjöldum um 100% fyrirvaralaust.

Virðulegur forseti. Á sama tíma og rætt er um nýja stöðugleikareglu er nánast ómögulegt að skilja hvernig hún er reiknuð eða hvað hún felur í sér í framkvæmd. Launakostnaður ríkisins hækkar samkvæmt áætlun um 5% á ári fram til 2030 en reglan á að setja skýrar skorður við útgjaldaaukningu. Hvernig passar það saman á tímabilinu að hækka útgjöld vegna launa um meira en 16%? Kaup á vörum og þjónustu hækka um 20% á tímabilinu. Hvernig á almenningur eða þingmenn að skilja samhengi hlutanna? Ég átta mig ekki á þessu, virðulegur forseti, ég verð bara að segja það.

Skýr stefnumótun í fjármálaáætlun er grundvallaratriði til að tryggja eða stuðla að hagkvæmni og skilvirkni í meðferð opinbers fjár auk þess að meta hvort fjárframlög skili yfirleitt árangri. Með þessari óljósu og ógagnsæju fjármálaáætlun er erfitt að sjá hvernig t.d. Ríkisendurskoðun eða fjármálaráð getur starfrækt eftirlitshlutverk sitt, hvað þá við hér á Alþingi.

Hér í lokin, virðulegur forseti, er í raun óskiljanlegt að sjálft tækið sem á að tryggja langtímaáætlanir ríkisins, fjármálaáætlunin sjálf, skuli vera svona óskýr og lítils metin af þeim sem leggja hana fram. Við getum og verðum að gera betur. Fjármálaáætlun á að vera vegvísir framtíðarinnar, skýr, ábyrg, mælanleg, með skiljanlegum markmiðum. Þingið og almenningur eiga heimtingu á að fá að vita í hvað fjármunum ríkisins er varið, hver stefnan er og hvaða árangri á að ná í heilbrigðismálum, hjúkrunarmálum, menntamálum og eignamálum ríkisins og nýsköpun. Það er ljóst að þessi fjármálaáætlun uppfyllir ekki þá kröfu. Þetta er, virðulegur forseti, óboðlegt en aðallega óskiljanlegt.