156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:45]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða ræðu. Það sem hv. þingmaður er að leggja áherslu á eru grafalvarlegir hlutir. Hv. þingmaður er að benda þingi og þjóð á að hér er ekki verið að fara eftir lögum. Nú þekki ég forsögu þessa máls. Það hefur verið markmið stjórnvalda lengi að vera með góða áætlanagerð, byggða á traustum grunni og mælanlega þannig að þetta snúist ekki um það að öll umræða sé bara „mér finnst“ og „ég held“ heldur að við getum fylgst með því, ekki bara hv. þingmenn heldur þjóðin, hvernig farið er með opinbera fjármuni og hvaða árangri er náð.

Hv. þingmaður benti hér á í andsvörum, og hæstv. ráðherra staðfesti það sem hv. þingmaður sagði, að það er ekki verið að fara eftir lögum. Og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson hefur gríðarmikla reynslu á þessu sviði, er fyrrverandi formaður hv. fjárlaganefndar. Hv. þingmaður leiðréttir mig ef ég hef rangt fyrir mér en ég held að þetta sé eitthvað sem við höfum aldrei séð áður frá því að lögin tóku gildi. Ég vil bara spyrja hv. þingmann hvernig hann sjái þessum málum vinda fram. Lög eru til að fara eftir þeim. Þetta snýst ekki um að ætla að redda því seinna. Það er ekki svo gott að fólkið í landinu geti sagt við lögregluna, ef það brýtur lög — segjum að það keyri of hratt svo að við tökum bara slíkt lögbrot: Heyrðu, ég bara lofa, ég ætla ekki að gera þetta á morgun. Í þessu tilfelli er þetta að vísu allt annað og miklu stærra mál. Ég vil spyrja hv. þingmann hvernig hann sjái þessu vinda fram því að við hljótum að ætla að fara eftir lögum um opinber fjármál.