156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:48]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni kærlega fyrir gott andsvar. Ég skal bara byrja á því að segja það hér, virðulegur forseti, að hv. þingmaður talaði um að þetta hefði ekki gerst áður. Ég þekki ekki til þess að við höfum lent í þessari stöðu áður varðandi fjármálaáætlun. Það er alveg ljóst að þær fjármálaáætlanir sem ég hef skoðað, þar hefur þetta verið inni. Í fjármálaáætlun í fyrra var þetta inni, við vorum að skoða það þegar við vorum að undirbúa okkur fyrir þessa umræðu. Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem þessu er einfaldlega kippt út. Svör hæstv. ráðherra eru á þá leið að það eigi að búa til eitthvert mælaborð sem eigi að koma seinna; gott og blessað ef það er skilvirkara og betra. En við erum að ræða um fjármálaáætlunina hér á Alþingi í dag og við þurfum að samþykkja eða hafna þeirri fjármálaáætlun og ræða hana í hv. fjárlaganefnd og til þess þurfum við gögn sem eru ekki hér en eiga að vera samkvæmt lögum um opinber fjármál. Það er það sem ég er að benda á og ég sé ekkert aðra leið í stöðunni. Ef það er verið að vinna þessi gögn í fjármálaráðuneytinu, til að setja í einhvern gagnvirkan gagnagrunn, þá vænti ég þess að þau séu til. Hæstv. ráðherra verður hreinlega að uppfæra þessa áætlun og koma með hana fyrir þingið uppfærða eins og lögin segja til um. Ég trúi því ekki að hæstv. ríkisstjórn eða hæstv. ráðherra hafi ætlað sér að fara á svig við lögin. Ég held að þetta hljóti að vera einhver handvömm af hálfu hæstv. ráðherra og ráðuneytisins, að menn hafi hreinlega ekki áttað sig á því að þeim væri ekki heimilt að taka þetta út. Og þá er bara að laga það. En fyrir okkur að ætla að fara að taka umræðu um þetta, það er bara mjög erfitt.