156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:50]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við erum að tala um mjög alvarlega hluti sem við höfum ekki séð áður. Ríkisstjórnin er ekki að fara að lögum um opinber fjármál. Nú voru þau lög ekkert sett fram í gær. Ég veit að þegar menn voru að fara í þetta í fyrsta skipti þá voru menn í breyttu vinnulagi og menn sögðu eins og er þegar þeir byrjuðu: Þetta mun þróast, framsetningin og annað slíkt. En menn fóru aldrei á skjön við lögin.

Ég held að það sé augljóst að við erum komin með stöðu sem á sér engin fordæmi. Hér kemur hæstv. ríkisstjórn og leggur fram fjármálaáætlun og það er ljóst að hún uppfyllir ekki lögin um opinber fjármál, það hefur verið staðfest og liggur fyrir. Hv. þingmaður var fyrstur hér í þingsal til að vekja athygli á því. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þetta verði rætt í forsætisnefnd, hvernig við eigum að vinna úr þessu því að þetta er snúin staða. Við hljótum að þurfa að fá þetta, ég trúi ekki öðru en að það sé vilji fyrir því að fara eftir lögum um opinber fjármál. Ég veit ekki hvort menn myndu á næsta blaðamannafundi sjálfshólsstjórnarinnar — ja, menn geta alla vega ekki verið að hreykja sér af því að vera fyrsta ríkisstjórnin sem fer ekki eftir lögum um opinber fjármál þegar kemur að fjármálaáætlun.

Virðulegur forseti. Ég er ekki með neina sérstaka spurningu. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu. Þetta er grafalvarlegt mál og það er þingsins alls, og sérstaklega hæstv. ríkisstjórnar, að finna leiðir til að við getum uppfyllt lög um opinber fjármál. Ég held að ég þurfi ekki að útskýra af hverju fara þarf að lögum.