156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:52]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni kærlega fyrir síðara andsvarið þó að ekki hafi falist í því spurning. En ég bara deili áhyggjum mínum með hv. þingmanni, þetta er skrýtin staða sem er uppi. Ég get alveg upplýst það hér að þegar við vorum að undirbúa okkur í þessari umræðu og þegar við áttuðum okkur á þessum meinbug á frumvarpinu lögðumst við í töluverða vinnu til að ganga úr skugga um hvort þetta stæðist eða ekki, hvort okkur væri að yfirsjást eitthvað. Við teljum okkur vera búna að grandskoða þetta það vel að ég treysti mér til að koma hér upp og tala með þeim hætti sem ég geri; og fór í andsvör við ræðu hæstv. ráðherra áðan sem staðfesti það sem ég sagði og er að segja. Satt best að segja veit ég ekki hvernig þingið ætlar að koma sér áfram í þessu máli og hvernig hæstv. ráðherra ætlar að koma sér áfram í þessu máli; hann verður bara að svara því og þau. En staðreyndirnar eru ljósar, þær liggja fyrir. Þær hafa verið staðfestar af hæstv. ráðherra. Spurningin sem eftir stendur er: Hvernig ætla menn að halda áfram?