156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[13:54]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir yfirferðina á fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030. Eftir áralanga óvissu heimila og fólksins í landinu vegna hás vaxtastigs og verðbólgu þá horfum við til bjartari tíma. Þjóðhagsspá Hagstofu Íslands talar einfaldlega sínu máli. Það eru horfur á að hagvöxtur taki við sér og það lifnar töluvert yfir einkaneyslu sem hefur verið lítil síðastliðin tvö ár. Verðbólga og vextir eru á niðurleið. Það er góðs viti. Það er hlutverk ríkisstjórnar að tryggja hér stöðugleika, greiða uppsafnaða innviðaskuld, rjúfa ákveðna kyrrstöðu og auka verðmætasköpun. Ég fagna því þessari fjármálaáætlun sem svo sannarlega er til þess fallin að stuðla að þessum markmiðum. Það er ekki síst vegna boðaðrar stöðugleikareglu í lögum um opinber fjármál. Með henni skapar ríkisstjórnin skilyrði fyrir lækkun vaxta og á að tryggja að ekki sé eytt um efni fram þegar vel árar. Það er að mínu mati mikil bót á umgjörð um fjármál hins opinbera, eins og sést í fjármálaáætlun þeirri sem er hér til umræðu, en samkvæmt henni verður ríkissjóður hallalaus strax árið 2027 og hið opinbera hallalaust árið 2028.

Virðulegi forseti. Fyrir kosningarnar 30. nóvember síðastliðinn einsettum við í Viðreisn okkur að hlusta á fólkið í landinu. Það gerðum við m.a. með því að fara með svokallaðar auðar töflur í verslunarmiðstöðvar og matvöruverslanir og fjölmarga fjölmenna staði. Við báðum fólk að segja okkur hvað lægi því á hjarta. Undantekningarlaust, virðulegur forseti, sagðist fólk hafa miklar áhyggjur af háu vaxtastigi og verðbólgu. Það sá það einfaldlega á eigin heimilisbókhaldi. Við viljum sýna í verki að það er hlustað á fólkið í landinu og að við svörum þessu kalli. Því er mikilvægt að lækkun vaxta og verðbólgu er leiðarljós þessarar fjármálaáætlunar. Nú þegar hefur Seðlabankinn lækkað stýrivexti fjögur skipti í röð vegna þess að verðbólgan heldur áfram að hjaðna. Peningastefnunefnd Seðlabankans telur að áfram dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum. Þó eru stýrivextir allt of háir og verðbólga yfir markmiðum Seðlabankans. Með þeirri fjármálaáætlun sem hæstv. ráðherra kynnir hér er fyrirséð að vextir og verðbólga muni halda áfram að ganga til baka.

Það var ljóst, virðulegi forseti, þegar ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins tók við í desember síðastliðnum, að verkefnið væri krefjandi. Þess vegna m.a. hefur ríkisstjórnin ákveðið að engin ný útgjöld verði á árinu 2025 án þess að afla tekna á móti eða hagræða. Við höfum hreinlega ekki efni á því. Með stefnu þessari er auðséð að með hallalausum rekstri ríkissjóðs strax árið 2027 skapast rými til þess að forgangsraða fjármunum þangað sem þörfin er brýnust. Ég vil í því samhengi nefna til að mynda uppsafnaða innviðaskuld síðustu ára sem er hátt í 680 milljarðar kr. Slík skuld dregur verulega úr lífskjörum landsmanna. Ég minnist þess í febrúar, þegar þingflokkur Viðreisnar fór um Norðurland vestra og Vesturland í kjördæmaviku, hversu illa farnir vegirnir voru, hvort sem litið var til bikblæðinga eða annarra skemmda á vegum og ég fagna forgangsröðun fjármálaáætlunar í vegabætur en strax á næsta ári fara í það verkefni um 7 milljarðar.

Frú forseti. Mig langar í ræðu minni að fá að nefna þrjú mikilvæg mál sem tengjast fjármálum hins opinbera og fylgja þarf fast eftir. Þau snerta samstarf og samskipti ríkis og sveitarfélaga. Í fyrsta lagi er efling sveitarstjórnarstigsins mikilvægt verkefni sem á að tryggja öruggari og betri nærþjónustu við íbúa hvar á landinu sem er. Aukið og náið samstarf ríkis og sveitarfélaga er lykillinn að því að slíkt geti gengið eftir. Til að svo geti orðið er mikilvægt að tryggja gagnkvæmt traust á milli þessara jafn réttháu stjórnsýslustiga. Aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga getur að mínu mati gefið fjölmörg tækifæri til hagræðingar í rekstri hins opinbera og að fjármagn verði nýtt mun betur.

Í öðru lagi langar mig að nefna málefni aldraðra. Þjóðin er að eldast sem eru svo sem engar fréttir. Þjónusta við aldraða er málefni sem skiptir okkur öll máli. Hún er einmitt hluti af nærþjónustunni og mikilvægt samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga, m.a. vegna heimaþjónustu og heimahjúkrunar. Hér er að mínu mati mikilvægt fyrir okkur að horfa sérstaklega til aukinnar velferðartækni svo hún geti stuðlað að auknu sjálfstæði aldraðra. Aldraðir eiga að geta lifað sjálfstæðu lífi á eigin heimili sem lengst. Þrátt fyrir þá mikilvægu stefnu er jafnframt nauðsynlegt að horfa til þess að byggja fleiri þjónustuíbúðir fyrir aldraða og við þurfum að fjölga hjúkrunarrýmum fyrir þau sem ekki geta eða treysta sér til að búa lengur heima og þurfa á slíkri þjónustu að halda. Uppbygging hjúkrunarheimila er einmitt eitt af þeim verkefnum sem nú hefur náðst samkomulag um að ríkið sjái alfarið um og ætti að létta á fjármálum sveitarfélaga. Um er að ræða aðgerð til að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og styrkja fjárhag sveitarfélaga.

Þriðja atriðið sem mig langar að nefna er samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir tímabilið 2026–2030 sem var undirritað í síðustu viku af fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra og formanni og framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga. Markmið samkomulagsins, sem byggist á lögum um opinber fjármál, er að ríki og sveitarfélög stuðli að góðri hagstjórn og styrkri og ábyrgri stjórn opinberra fjármála. Eins og fram kemur í frétt á vef ráðuneytisins, með leyfi forseta, „er mikilvæg forsenda efnahagslegs stöðugleika að umsvif sveitarfélaga, rétt eins og ríkisins, þróist jafnt og ekki umfram það svigrúm sem er til vaxtar opinberra útgjalda til lengri tíma litið. Þá eru aðilar samkomulagsins sammála um að vinna að endurskoðun fjármálareglna sveitarfélaga þannig að þau þjóni betur framangreindum markmiðum.“

Til að ná hagstjórnarlegum markmiðum fjármálastefnu og fjármálaáætlunar er mikilvægt að draga jafnt og þétt úr hallarekstri ríkis og sveitarfélaga á tímabili áætlunarinnar og stöðva hækkun skulda hins opinbera í hlutfalli af vergri landsframleiðslu. Með því á að vera hægt að tryggja sjálfbærni í rekstri og vonandi tryggja að ríki og sveitarfélög séu betur í stakk búin til að bregðast við áföllum í framtíðinni. Það er mikilvægt að ríki og sveitarfélög beiti aga í fjármálum og rekstri hins opinbera. Það ætla þau að gera í samstarfi samkvæmt þessu samkomulagi.

Virðulegi forseti. Þar sem ég er farinn að tala um aga í fjármálum hins opinbera þá treysti ég engum betur en hæstv. fjármálaráðherra, Daða Má Kristóferssyni, til að fylgja fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 fast eftir og tryggja þann aga sem þarf að vera í opinberum útgjöldum innan þeirrar áætlunar sem lagt er upp með. Ég mun sem fulltrúi Viðreisnar í fjárlaganefnd leggja mitt af mörkum til að svo megi verða.