fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og margt áhugavert sem þar kom fram. Ég er með nokkrar spurningar í tengslum við það. Hv. þingmaður sagði, sem mér fannst vera skynsamlegt, að í aðdraganda kosningabaráttunnar hefði fólk verið spurt hvað brynni mest á því og um hugmyndir þess, ef ég skil málið rétt. Var áberandi þar að menn vildu hækka tekjuskatta á sjálfan sig? Það er kannski fyrsta spurningin. Svo líka það að hv. þingmaður þekkir vel til, enda með bakgrunn þar, með sveitarfélögin og mikilvægi þess að vinna þétt með þeim hjá ríkisvaldinu. Hvernig fer það saman núna þegar maður er að fá viðbrögð sveitarfélaganna við skattkerfisbreytingunum? Hvernig fer það saman að segjast vinna eftir þessu og að menn vilji vinna vel með sveitarfélögunum, mikilvægi þess? Ég var nú bara að lesa hér frá samflokksmanni hans á Vestfjörðum sem var einmitt að kvarta undan samráðsleysi, sem mér heyrist öll sveitarfélög hafa gert sem eru með sjávarútveg innan sinna raða. Hvernig fer þetta saman við það að hlusta á fólkið í landinu, vinna með sveitarfélögunum og ganga fram eins og hæstv. ríkisstjórn er að gera núna þegar kemur að tvöföldun á veiðigjaldi? Mér finnst ekki alveg fara saman hljóð og mynd þarna.
Spurningar mínar eru tvenns konar. Það er líka vegna þess að ríkisstjórnin sagði fyrir helgi að hún ætlaði ekki að hækka skatt á einstaklinga en ætlar að hækka skatta núna á heimilin í landinu, bara þegar kemur að tekjuskatti, 2.500 milljónir. Hvernig hv. þingmanni hugnist það og hvort hann styðji það. Sömuleiðis varðandi samstarf ríkis og sveitarfélaga: Hvernig fer saman það sem hv. þingmaður sagði og það sem er að gerast núna?