156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[14:07]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætlega skýr svör. Mér finnst aftur þetta ekki alveg fara allt saman vegna þess að ég vitnaði hér áður í umræðunni í viðtal við hæstv. ráðherra fjármála í Bítinu þar sem hann er spurður: Verður engu breytt varðandi veiðigjaldið eftir ágjöf útgerðarinnar og sveitarfélaga? Svarið var mjög skýrt: Nei. Hvað ætlarðu að gera annað? hélt ráðherrann áfram. Þetta er mjög skýrt: Nei. Ég veit ekki hvort tíma fólks sé vel varið í að sitja og funda með atvinnuvegaráðherra því að þetta var mjög afdráttarlaust. Það er oft kvartað undan því að stjórnmálamenn tali ekki skýrt en þetta var mjög skýrt: Nei, þessu verður ekki breytt.

Ég tek alveg undir þetta með verðbólgu og vexti og við erum alveg sammála því. En ég held að ég muni rétt að Viðreisn hafi talað mjög skýrt fyrir kosningar um að þeir ætluðu ekki að hækka skatta. Ég held að ég muni það og þess vegna spyr ég: Af hverju er Viðreisn að hækka skatta? Þá er ég ekki að tala um veiðigjaldið, ég veit að þar, held ég alla vega, hefur þá langað til að gera ýmsar breytingar. Ég held að það liggi alveg fyrir í sjávarútvegsmálum og ráðherra Viðreisnar ætlar ekki að gefa neitt eftir og breyta neinu varðandi veiðigjaldið þrátt fyrir mótmæli sveitarfélaganna, sem hv. þingmaður réttilega benti á að væri mikilvægt að hlusta á. En spurningin er þessi: Af hverju er Viðreisn að hækka skatta á almenning í landinu?