fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson spyr um afstöðu mína og flokksins til skattahækkana. Nú er það þannig, eins og ég skýrði ágætlega út í ræðu minni áðan, að það er mjög mikilvægt að tryggja tekjur til að eiga fyrir þeim útgjöldum og þeirri stöðu sem ríkissjóður er í í dag. Ég reikna með að hv. þingmaður hafi verið að vitna til samsköttunarmálsins, ef ég hef skilið rétt. (GÞÞ: Meðal annars, já.) Þá er þetta líka spurning um á hverja það leggst, sem við eigum kannski eftir að fá betri greiningar á, á hvaða hóp slíkur skattur leggst, hvort það séu breiðu bökin, þ.e. þeir sem hafa hæstu tekjurnar, eða hvort við séum, og ekki síst, að hlífa þeim sem hafa minni tekjur.
Mig langar aðeins að nefna hérna varðandi veiðigjöldin að það er auðvitað nauðsynlegt fyrir okkur, og það er það sem verið er að skoða, því að hv. þingmaður talar um samráðsleysi, það er auðvitað mikilvægt að við hlustum á aðila í þeim sveitarfélögum þar sem við erum með minni útgerðarfyrirtæki. Það hefur svo sem alveg verið kynnt varðandi frítekjumarkið og ég held að það sé akkúrat sá hlutur sem við eigum enn þá og getum enn þá spilað út. Ég held að það sé bara verkefni fyrir okkur sameiginlega, hv. þingmaður, að vinna saman í því að tryggja að við fáum eðlilegar tekjur af auðlindinni sem þjóðin á sameiginlega.