156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[14:11]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni fyrir sína framsögu. Mig langar aðeins að velta upp nokkrum hlutum í tengslum við framlagða fjármálaáætlun. Við sjáum það að öll útgjöld eru að hækka að raungildi. Engin niðurgreiðsla skulda. Það er í rauninni ekkert aðhald. Ef við horfum á það að frátaldri verðbólgu þá er launakostnaðurinn að hækka um 5% á ári. Aðkeypt þjónusta er að hækka á tímabilinu um 20–25%. Mig langar í ljósi þessa að spyrja hv. þingmann: Hvar er aðhaldið sem talað er um og hvar er festan í fjármálaáætluninni?