156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[14:12]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir góða spurningu því að það kemur fram í fjármálaáætlun varðandi stöðugleikaregluna hvernig við erum einmitt að skapa aga í fjármálum ríkisins og ekki veitir af. Ef hv. þingmaður hefur kynnt sér stöðugleikaregluna þá ætti hún að þekkja það að þar er verið að tala um að útgjöld ríkisins muni ekki hækka nema sem svarar 2% eða minna og að við pössum okkur á því að þegar tekjurnar aukast þá mætum við þessum sveiflum með því að vera ekki að eyða umfram tekjur heldur eiga fyrir því sem við ætlum að gera þegar fer að halla undan fæti, því að við vitum að hagsveiflur eru reglulegar og við þurfum auðvitað að hugsa út frá því. Þannig að ég vil meina að í þessari fjármálaáætlun séum við að beita ákveðnum aga varðandi útgjöld og til að tryggja útgjöldin þurfum við að skapa tekjur og þar segi ég að þessi fjármálaáætlun einfaldlega skýri það vel út.