156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[14:14]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Nú hef ég kynnt mér einmitt stöðugleikaregluna og nú er verið að afnema afkomuregluna en ef afkomureglan væri við gildi og við myndum horfa á niðurgreiðslu skulda sem er lögð fram í þessari fjármálaáætlun þá værum við hugsanlega að brjóta afkomuregluna. Þess vegna er væntanlega verið að afnema hana og setja stöðugleikaregluna, sem er nokkuð bitlaust því að stöðugleikareglan er ekki að taka á innviðauppbyggingu þar sem þenslan er í samfélaginu. Það er nánast engin niðurgreiðsla skulda á þessu fimm ára tímabili sem í rauninni skilur þessa stöðugleikareglu eftir bara algerlega bitlausa. Þannig að ég vil fá að heyra frá hv. þingmanni: Hvar tekur þessi stöðugleikaregla raunverulega á?