fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen kærlega fyrir spurninguna. Það skiptir náttúrlega gríðarlega miklu máli til þess að stöðugleikareglan virki almennilega þar að ná böndum á útgjöld. Þá skiptir auðvitað máli að ná hallalausum fjárlögum. Það kemur fram í fjármálaáætluninni að við ætlum að árið 2027 verði fjárlög orðin hallalaus. Ég tala nú ekki um, af því að ég tók það fram í ræðu minni áðan, að það skiptir líka máli hvað við gerum í fjárlögum hins opinbera því að þetta er ekki bara spurning um fjárlög ríkisins, þetta er líka spurning um fjárlög sveitarfélaganna. Árið 2028 reiknum við með að fjárlög hins opinbera verði orðin hallalaus. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Um leið og við erum búin að ná þessum tökum þá virkar stöðugleikareglan bara nákvæmlega eins og hún á að virka. Það er það sem skiptir gríðarmiklu máli til lengri tíma litið einmitt til þess að passa þessar hagsveiflur.