156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:02]
Horfa

Forseti (Ingvar Þóroddsson):

Nú hefjast umræður um málefnasvið fagráðherra. Ráðherrar hefja umræðu um sín málefnasvið og hafa til þess fimm mínútur. Að lokinni ræðu ráðherra flytja þingmenn ræður, einn til tveir frá hverjum stjórnarandstöðuflokki og einn frá hverjum stjórnarflokki, að undanskildum þingmönnum úr flokki viðkomandi ráðherra. Ræður þingmanna eru tvær mínútur í fyrra sinn og tvær mínútur í síðara sinn og hefur ráðherra jafn langan tíma á móti.

Röð ráðherra í dag verður eftirfarandi: Forsætisráðherra, staðgengill utanríkisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, atvinnuvegaráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.