fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Við fjöllum í dag um fyrstu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og í þessari áætlun má finna skýr skilaboð um pólitík þeirra þriggja flokka sem mynda stjórnina en að sama skapi tekur hún líka mið af þeirri stöðu sem hefur teiknast upp á örfáum vikum en áhersla á öryggi og innviði Íslands hefur sjaldan átt jafn vel við og í dag. Við þurfum að treysta undirstöðurnar hér heima, innviðir verða að vera sterkir, ríkissjóður sjálfbær, heimilin fjárhagslega trygg og við þurfum líka að huga að öryggisvitund þjóðar og vörnum landsins. Ríkið verður að halda sjó og passa upp á verðbólguna og stuðla að stöðugleika í efnahagslífi, sérstaklega þegar merki eru um miklar vendingar í tollamálum á alþjóðasviðinu. Ríkisstjórnin hefur skyldu til þess að passa upp á hagsmuni landsins í svona stöðu, annars vegar með því að tryggja góð samskipti við okkar grannríki og passa upp á að mótaðgerðir við tollum Bandaríkjanna lendi ekki á okkur og hins vegar með því að vera einmitt öguð í fjármálum hér innan lands til að bæta ekki á verðlagsþrýstinginn. Um það snýst fjárhagslegt öryggi eins og það birtist nákvæmlega í þessari áætlun.
Eins og hæstv. fjármálaráðherra fór yfir í morgun þá er gert ráð fyrir í áætluninni að hér verði hallalaus fjárlög árið 2027 en þegar ný ríkisstjórn tók við voru hallalaus fjárlög ekki í augsýn á þessum áratug. Ríkisfjármálastefnan mun þannig styðja við peningamálastefnuna, draga úr þrýstingi á verðlag og þar með auka svigrúm til vaxtalækkana að öðru óbreyttu. Við sjáum að vaxtalækkanir eru nú þegar farnar að draga verulega úr greiðslubyrði heimilanna, um 360.000 kr. á ári, frá því að vaxtalækkunarfasinn hófst núna fyrir áramót.
Mér finnst líka mikilvægt, forseti, að taka fram að í þessari áætlun birtist nýtt verklag. Ríkisstjórnin vann þessa áætlun saman þar sem tekin var ákvörðun um stóru myndina strax; hallalaus fjárlög og nokkur stór pólitísk verkefni sem sneru annars vegar að tekjuhlið og hins vegar að útgjaldahlið. Síðan skuldbinda fagráðherrar sig við að fylgja rammanum. Ramminn sjálfur er hins vegar sveigjanlegur, þ.e. hvernig hann er nýttur innan borðs og það er hæstv. fagráðherra að meta hvernig fjárheimildum er dreift og hvernig með það er unnið. Ráðherrum er þannig veittur aukinn sveigjanleiki með nýtingu fjárheimilda sinna yfir tímabilið eins og stóð alltaf til að fjármálaáætlun byði upp á. Þetta þýðir meiri ábyrgð fagráðherranna, sem er gott og mikilvægt. Með því að horfa á þessa stóru mynd hefur okkur líka tekist að halda sjó á afkomuhliðinni sem hefur reynst erfitt í gegnum tíðina og þetta vinnulag hefur líka gefið okkur færi á að beina fjármagni inn í verkefni sem falla svo oft milli skips og bryggju því að ábyrgðarskiptingin hefur ekki verið skýr og ákveðnir málaflokkar hafa mætt afgangi í hagsmunagæslu ráðuneyta. Ég get t.d. nefnt hérna málefni öryggisvistunar og málefni barna með fjölþættan vanda.
Þetta verklag birtist líka í því að í þessari fjármálaáætlun er ekkert óútfært aðhald. Það er búið að líta til stöðu þeirra verkefna og tillagna sem hagræðingarhópurinn tók saman og eyrnamerkja þau verkefni á hvert ráðuneyti. Þannig komum við í veg fyrir flatt aðhald sem á það til að kroppa í málefnasviðin, draga úr viðhaldi, draga úr fjárfestingu, fresta verkefnum, aðhald sem breytir ekki hvernig málaflokkum er stýrt til framtíðar. Í því felst sjaldan raunverulegur rekstrarsparnaður heldur hefur hins vegar byggst upp skuld til framtíðar þannig að það aðhald og sú hagræðing sem rætt er um í þessari áætlun felur í sér breytta stefnu, sameiningar þar sem við á og þar sem talið er mikilvægt og skynsamlegt að fara í uppstokkun, breytingar á innkaupum ríkisins o.fl.
Ekkert af þessu er auðvelt eða sjálfsagt, annars væri búið að gera það. Það liggur alveg fyrir. En í þessari áætlun þá skuldbinda hæstv. ráðherrar sig samt til að fara í þá mikilvægu vegferð að stilla ríkisreksturinn betur af og þarna fáum við skýra ábyrgðarskiptingu þvert á stjórnsýsluna sem skiptir alveg gríðarlega miklu máli. Þetta skiptir líka máli upp á trúverðugleika áætlunarinnar vegna þess að hún verður að þola breyttar aðstæður eins og umhverfið sem við störfum núna í kallar á.
Með þessum vinnubrögðum, forseti, sköpum við svigrúm til að styrkja landið. Hagræðing upp á um 10 milljarða á næsta ári fer upp í um 30 milljarða út kjörtímabilið. Við erum líka að beita agaðri forgangsröðun og þetta hefur skilað sér í skýrum fókus á sviði heilbrigðismála, félagsmála, styrkingu varnar- og öryggismála og eins á sviði nýsköpunar þar sem áfram verður stutt við vöxt háframleiðnigreina. Þá erum við að taka stórar ákvarðanir eins og tímarnir kalla á og kjósendur landsins hafa kallað eftir með því að taka réttlát auðlindagjöld, bæði í sjávarútvegi og ferðaþjónustu, til að skapa svigrúm fyrir mikilvæga innviðafjárfestingu.
Við erum að stíga stór skref með þessari fjármálaáætlun og ég hlakka til umræðunnar hér í dag.