156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:08]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026–2030 kynnir aðhaldsaðgerðir sem eiga að skila yfir 100 milljörðum kr. í sparnað. Þrátt fyrir þessa háu tölu eru aðgerðirnar óljósar og illa útfærðar. Til dæmis er gert ráð fyrir 27 milljarða kr. sparnaði í innkaupum ríkisins án þess að fram komi hvernig það verði gert eða hver beri ábyrgð á því. Í heilbrigðis- og menntakerfinu eru nefnd sameiningaráform og forgangsröðun án skýringa á því hverjir muni finna fyrir því eða hver beri ábyrgð. Þetta eru ekki aðgerðir, þetta eru orð.

Það sem gerir málið enn alvarlegra er hversu hroðvirknislega þessi áætlun er unnin. Til dæmis er fjallað um allt málefnasvið dómsmálaráðuneytisins á rétt rúmlega einni blaðsíðu í einum graut, án skýringa eða markmiða. Í fjármálaáætlun í fyrra var farið yfir nákvæmlega sömu málefnasvið í miklu ítarlegra máli. Hvernig á þingið að geta unnið þetta vel ef þetta er framsetningin? Hvers konar vinnubrögð eru þetta? Stjórnin talar um erfiða stöðu en á bls. 24 í fjármálaáætlun segir, með leyfi forseta, „að íslenskt efnahagslíf standi sterkt að vígi“, og á bls. 25 segir að undirliggjandi þróttur sé ágætur. Þeir byggja nú allt sitt traust á góðum grunni sem aðrir lögðu.

Við í Sjálfstæðisflokknum styðjum ábyrgð í ríkisfjármálum og nauðsyn aðhalds. Hins vegar krefjumst við þess að slíkar aðgerðir séu kynntar af heilindum. Það er ekki nóg að fullyrða að allt sé útfært ef engin gögn styðja það.