fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég þakka fyrirspurnina en vek jafnframt athygli á því að ég eyddi meginþunga framsögu minnar í að tala um að það er ekkert óútfært aðhald í þessari fjármálaáætlun eins og reyndist ítrekað raunin í síðustu fjármálaáætlun. 10, 15, hátt í 20 milljarðar; ég man ekki betur en að í síðustu fjármálaáætlun hafi verið tugir milljarða af óútfærðri eignasölu hjá síðustu ríkisstjórn. Það er ekkert slíkt í þessari áætlun. Engu að síður er vitnað í 107 milljarða kr. sparnaðartillögur sem til er heilt rit um og var haldinn, eins og einhver tók kannski eftir, ágætisblaðamannafundur um. Það er beint verið að vitna í þær hagræðingartillögur. Það er alveg ljóst út frá þeirri tillögugerð hvar þær hagræðingartillögur eiga heima. Það liggur alveg fyrir þegar maður skoðar sameiningu ákveðinna stofnana.
Eins er með opinberu innkaupin. Já, það á að spara í opinberum innkaupum. Þannig er einmitt í ramma hvers ráðuneytis búið að eyrnamerkja ákveðið hlutfall í opinberum innkaupum á hverjum og einum stað. Því er ekki rétt að allt aðhald sé óútfært. Það sem er hins vegar rétt er að hið nýja verklag þessarar ríkisstjórnar hefur gert það að verkum að í stað þess að erfa gamla verklagið sem gekk út á að byggt var upp frá grunni og allir tíkallar, allar 10 milljónir, allar 100 milljónir voru teknar úr hverju einasta ráðuneyti og farið var í fjárlagagerð í rauninni fimm ár fram í tímann, var ákveðið að nálgast þetta frá toppi og niður og ákvarða rammana í heild sinni, sem er það sem fjármálaáætlun átti alltaf að vera. Hún átti ekki að vera fjárlagagerð fyrir hvert og eitt ár. Hún átti að vera stefnumótandi rammi fyrir hvert og eitt ráðuneyti. Í sumar munum við síðan vinna að fjárlagagerð þar sem hvert og eitt ráðuneyti festir niður á hvert svið innan húss sínar áætlanir. Þess vegna birtist greinargerðin með þessum hætti. (Forseti hringir.) Áherslurnar koma fram en síðan tökumst við á um tíkallana, milljarðana, 10 milljarðana í haust.