fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Það er ágætt að taka þessa umræðu um hvað á að birtast í fjármálaáætlun og hvað ekki, vegna þess að fyrri ríkisstjórn stundaði það ítrekað að fagráðherrar komu upp og voru með upptalningu á ákveðnum þáttum sem þeir sögðust síðar ætla að endurskoða, hægt væri að bíða ár í viðbót eftir því að sjá uppfærða fjármálaáætlun og þá myndi það lagast. Það sem þessi ríkisstjórn er búin að skuldbinda sig til að gera er að skila hallalausum fjárlögum 2027 og það verður gert. Síðan verða rammarnir nýttir til að fara í einstakar útfærslur í aðdraganda fjárlagagerðar. Þannig virka lög um opinber fjármál. Það stóð aldrei til að fjármálaáætlun yrði niðurnjörvuð á hvern einasta málaflokk. Ég get hins vegar glatt fólk hér inni með því að benda á — þetta er eflaust eitthvað sem hæstv. dómsmálaráðherra getur farið yfir hér eftir — að það er t.d. gert ráð fyrir styrkingu til Landhelgisgæslunnar strax upp á 900 millj. kr. Þetta er eitthvað sem skorti lengi vel hjá síðustu ríkisstjórn. Ég veit að það er ekki nóg. Það þarf að finna meira fjármagn og dómsmálaráðherra hefur fullt svigrúm innan síns ramma til þess að hliðra til. Hún þarf ekki að vera búin að ákveða núna í mars eða apríl hvernig hún ætlar að gera þetta, hún hefur næstu mánuði í aðdraganda fjárlagagerðar til þess að finna fjármagn. En það er búið að finna 900 millj. kr. sem sérstaklega voru eyrnamerktar af ríkisstjórninni í það.
Varðandi framhaldsskólakerfið þá er ágætt að fá þá umræðu fram, vegna þess að það sem kemur ekki fram í greinargerðinni en hefði átt að gera það, sem ég hygg að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fari yfir á morgun, er að gert er ráð fyrir auknu svigrúmi út af málefnum barna og framhaldsskólanna í varasjóði þar sem brugðist verði við því ef sameiningar á rekstrarstiginu — þetta snýst ekki um að sameina skóla heldur að samhæfa og leyfa ákveðna samvinnu þegar kemur að stoðsviðum skólanna sem víða hefur verið kallað eftir — geta ekki skilað umræddri hagræðingu. Ef svo er verður svigrúm. Það er ekki verið að gera kröfu um hreint aðhald í almennum rekstri umfram það sem samvinna á stoðsviðinu kallar á. Því er ekki ætlun þessarar ríkisstjórnar að skera óþarflega niður í framhaldsskólum.