156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:19]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar athugasemdir. Við erum kannski líka að nýta upphafið í að koma inn á þá afkomuþróun sem þó blasti við þegar við tókum við hér fyrir áramót. Þá lá fyrir að gatið sem við þurftum að loka á þeim tíma voru 50 milljarðar kr., sem hafði farið snarversnandi þar um haustið. Síðan kom uppfærsla á afkomu og gatið endaði í 30 milljörðum kr. Við hefðum ekki séð fyrir endann á því gati á þessu kjörtímabili nema gripið hefði verið til aðgerða. Ég held að það skipti alveg rosalega miklu máli, gríðarlega miklu máli, að fólk átti sig á mikilvægi þess, sérstaklega í þeim aðstæðum sem hv. þingmaður kemur hér inn á, þar sem við erum að sjá svona vendingar á alþjóðavísu, þar sem flökt verður í verðlagi, sem án efa mun gerast þegar við sjáum tolla leggjast á sem eru ekkert annað en viðbótarskattar, að það sé a.m.k. stöðugleiki í efnahagsmálum hér innan lands. Þetta er alger forsenda. Eitt af því besta sem við getum gert er að tryggja að við séum ekki með innlenda verðbólgu hér á sveimi.

Það liggur auðvitað alveg fyrir að þessar hækkanir sem eru að koma á íslenskar vörur upp á 10% — þetta eru auðvitað verulega vond tíðindi. En staðan er þó sú að þetta eru hvað skástu mögulegu tíðindin miðað við margt annað sem hefur verið nefnt og önnur lönd og verð er auðvitað hlutfallslegt. Að því leyti til erum við ekki að verða fyrir það miklum skaða. En það sem ég hef áhyggjur af eru auðvitað áframhaldandi viðskiptahagsmunir Íslands þvert á lönd. Ég og hæstv. utanríkisráðherra höfum haft áhyggjur af því að Ísland myndi klemmast á milli ef kemur til tollastríðs og þess vegna höfum við verið í mjög virku sambandi við okkar helstu viðskiptaaðila, t.d. Evrópusambandið. Ég er einmitt að fara á fund með framkvæmdastjóra Evrópusambandsins, Ursulu von der Leyen, í næstu viku til að halda hagsmunum Íslands á lofti og tryggja að við verðum ekki fyrir barðinu á mótaðgerðum.