fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Auðvitað er það þannig að það koma mótaðgerðir. Þetta er fyrsta útspil, svo koma önnur útspil frá öðrum þjóðum og það er auðvitað bara þannig með tollastríð eins og önnur stríð að það veit enginn nákvæmlega fyrir fram hvernig þau þróast. Það er því rosalega rangt af okkur hér í þessum sal að fara að tala um þetta sem einhvern fasta af því að þetta á eftir að vera á fleygiferð næstu vikur en vonandi ekki næstu misseri. Við skulum vona að úthaldið í þessu stríði, af hálfu þess sem hefur það, sé minna en orð gefa kannski tilefni til.
En það hefur líka verið rætt talsvert mikið um veiðigjöld í þessari umræðu um fjármálaáætlun. Mig langaði kannski aðeins að beina athyglinni að einum þætti og er ég þá ekki að horfa á einhverja einstaka liði heldur bara aðeins á stærri myndina. Það er auðvitað þannig að áform eru um að hækka veiðigjöld, m.a. til þess að reyna að standa straum af því að vinna á þeirri gríðarlegu innviðaskuld sem hefur safnast upp í tíð síðustu ríkisstjórnar. Þetta er auðvitað verkefni sem ég hygg að almenn sátt sé um að fara í. Hins vegar hefur margt verið gert til að reyna að tortryggja þessi áform ríkisstjórnarinnar um að fara í það að gera veiðigjöldin réttlátari því að þetta er auðvitað réttlætismál. Það er ekki rétt nálgun í þessu, að mínu mati, að stilla þessu upp eins og þetta sé eins og hver önnur skattheimta heldur er þetta ákveðið réttlætismál; það er mikilvægt að veiðigjöld og auðlindagjöld almennt séu mjög skýr og afmörkuð þannig að almenningur, sem þessi gjöld renna til, sé meðvitaður um hvað verið er að greiða fyrir afnot af tilteknum auðlindum.
En það sem mig langaði að spyrja hæstv. forsætisráðherra um er að vandinn sem blasir við okkur er auðvitað svolítið mikið vantraust. Það er vantraust eftir undanfarin ár á því að orð, um að farið verði í langvarandi innviðauppbyggingu, t.d. í vegakerfinu, skili sér vegna þess að það hefur ekki endilega verið mikið um efndir, ekki alltaf. Það hefur oft verið talað um tiltekna gjaldtöku (Forseti hringir.) og að það eigi að renna í eitthvað en það hefur hins vegar ekki verið efnt. Þá blasir auðvitað við ákveðið vantraust sem við erum öll með í fanginu. (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja hvort hæstv. forsætisráðherra sé ekki sammála mér um þetta og hvort það þurfi ekki að gera mikið til að endurheimta þetta traust.