fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Það er vissulega þannig að vantraust hefur verið til staðar. Það hefur náttúrlega líka verið vantraust til staðar, langar mig að segja í upphafi, hjá aðilum sem búa fyrir utan stórhöfuðborgarsvæðið á það að ef ráðist er í einhverjar aðgerðir muni það skila sér í bættri þjónustu til þeirra. Við skulum bara horfa vítt og breitt um landið, á alla þá sem eru að tala um að þessi ríkisstjórn sé ekki byggðavæn, og velta því fyrir okkur hvernig síðustu ríkisstjórnir hafa skilað aukinni arðsemi, fjölgun starfa og auknum hagvexti hringinn í kringum landið. Það hefur einfaldlega ekki gengið upp. Ef maður fer á þessi svæði þá veit maður að það sem helst stendur atvinnusköpun fyrir þrifum eru samgöngur, þ.e. að það er ekki hægt að keyra á milli staða af nægu óöryggi alla daga til þess að tryggja að við getum til að mynda verið með samþætt atvinnusvæði. Það hefur ekki fengist fjármagn til að fara í jarðgangagerð eða til að ráðast í eðlilegar vegabætur. Það hefur ekki gengið að styrkja heilbrigðisþjónustu á svæðunum. Þetta er það fyrsta sem maður heyrir, þegar maður talar við fólk í atvinnurekstri, það eru vegirnir, það er heilbrigðisþjónustan, það eru þessir grunnþættir.
Ég skil því alveg áhyggjur fólks þegar breytingar verða í nærumhverfinu. Staðan er hins vegar sú að sá mikli hagnaður, 20–30% hagnaðarhlutföll, sem við sjáum hjá mörgum af þessum fyrirtækjum sem eru í sjávarútvegi, sem eru hagnaðarhlutföll sem hver aðili í einkarekstri myndi prísa sig sælan yfir að sjá, er ekki allur að skila sér inn í fjárfestingu í vegina, fjárfestingu í heilsugæsluna, fjárfestingu í nærumhverfinu. Þetta er oft að skila sér í fjárfestingu á suðvesturhluta landsins eða í fjárfestingu erlendis. Í þessu samhengi skiptir máli að við erum pólitískt að eyrnamerkja það fjármagn sem við ætlum að sækja í réttlát veiðigjöld. Það er vissulega þannig að það er ekkert í fjárlögum sem eyrnamerkir lögum samkvæmt ákveðna þætti inn í önnur verkefni en við getum pólitískt skuldbundið okkur, eins og við höfum gert í þessari fjármálaáætlun, til að setja strax 8–9 milljarða til viðbótar í vegakerfið og það höfum við gert.