156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:29]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisfyrirspurn. Vissulega er ákveðin óvissa uppi víða. Það breytir því ekki að til að mynda umræddur 10% tollur sem yrði núna settur á sjávarafurðir er á vöru sem Bandaríkin framleiða nær ekkert af sjálf. Það liggur alveg fyrir að það er mjög óskynsamlegt af hálfu Bandaríkjamanna, ef þau ætla að fara í tollahækkun á einhverja vöru, að gera það á vöru sem þau framleiða ekki sjálf. Það þýðir að sjávarútvegurinn er þó, þó að ég ætli ekki að gera lítið úr þessari stöðu almennt á viðskiptahagkerfið, í frekar sterkri stöðu þegar kemur að verðlagningu. Frændur okkar í Noregi fá á sig 15% hækkun. Það er kannski sá samkeppnisaðili sem við myndum líta til þegar kemur að útflutningsaðilum. Verðnæmnin, ef svo má segja, mun fyrst og fremst birtast, eins og ég held að flestir telji og þarf ekki hagfræðigráðu til, á mörkuðum í Bandaríkjunum, í hærra verði í Bandaríkjunum. Ég sé ekki annað fyrir mér en að töluvert svigrúm verði fyrir umrædd fyrirtæki að velta þessu yfir í verðlagið þar.

Ég ætla hins vegar ekki að gera lítið úr almennum afleiðingum af þessum hækkunum á viðskiptakerfið almennt. Við skulum ekki gera það. Hvað varðar veiðigjöldin almennt þá ber mér skylda til að nefna það hér og ítreka það að ekki er um skattlagningu að ræða. Auðlindarenta hefur ekkert með rekstur fyrirtækja að gera. Renta í sjálfu sér skapast þegar þú lokar kerfi og kemur í veg fyrir að það verði eðlileg samkeppni um þá rentu. Það hefur ekkert að gera með rekstur þessara fyrirtækja. Það sjá allir þegar litið er á raunveruleikann. Af því að fólk vill tala um raunveruleikann hér; þegar arðsemishlutföll þessara fyrirtækja eru skoðuð þá vitum við að það er vel borð fyrir báru.