fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Þetta var nú allsérstök athugasemd þarna í lokin. Þetta var eins og að hlusta á Bandaríkjaforseta lýsa því að tollar hefðu ekkert með afkomu fyrirtækja að gera, tengdust ekki sköttum á nokkurn hátt, þeir væru bara álag, renta, eins og hæstv. forsætisráðherra kallaði það. Þetta er kannski svolítið lýsandi fyrir þessa fjármálaáætlun sem virðist ganga meira út á það að gefa hlutunum ný nöfn, pakka þeim inn í nýjar umbúðir, en að ræða innihaldið og raunverulegar lausnir.
Eitt af því sem vakti mesta athygli í upphafi hjá þessari ríkisstjórn voru áform hennar um að leita til almennings um sparnaðarráð. Bárust fjölmargar tillögur og svo kynnti ríkisstjórnin nokkrar tillögur unnar upp úr þessum ábendingum almennings. En um leið og þú barst gagnrýni á einhverjar þessara tillagna þá hrukku menn í baklás og bentu á að þetta væri bara eitthvað frá fólki úti í bæ. Þetta væru ekki tillögur ríkisstjórnarinnar. Svo sjáum við það í þessari fjármálaáætlun að fjallið virðist hafa tekið jóðsótt og lítil mús hafi fæðst hvað varðar sparnaðarráðstafanir ríkisstjórnarinnar. Eru engin áform um meiri sparnað en þarna er lýst? Eru engin áform um að gera meira með þær hugmyndir sem almenningur góðfúslega skilaði ríkisstjórninni?
Ég get ekki alveg látið staðar numið varðandi það ástand sem nú er uppi vegna tollamálanna og verð að spyrja hæstv. ráðherra: Hyggst forsætisráðherra grípa til einhverra aðgerða, sýna einhver viðbrögð gagnvart Bandaríkjunum og sérstaklega Bandaríkjaforseta í þessu efni? Hver verða þá þau viðbrögð? Mun hæstv. forsætisráðherra, eins og forsætisráðherrar annarra Norðurlanda, hafa samband við Bandaríkjaforseta og ræða viðskipti þjóðanna?