fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Svo ég komist nú yfir efni fyrirspurnarinnar vil ég fyrst segja að þegar ég ræði um að veiðigjöld hafi ekkert með rekstur að gera þá er ég bara að benda á að það er vel vitað og virðist vera að í flestum löndum nema á Íslandi sé atvinnulífið tilbúið að viðurkenna að það er munur á auðlindarentu og hefðbundnum hagnaði. Þetta er þekkt hagfræðilegt hugtak og oft er talað um að þetta sé hagkvæmasta gjaldtakan vegna þess að hún hefur ekkert með ákvörðun um framleiðslueiningar að gera. Ég ætla ekki að vera að takast á um þetta þó að við séum oft á þeim stað, skrýtna stað, á Íslandi að vera ekki tilbúin að meðtaka hluti sem mörg lönd í kringum okkur eru tilbúin að ræða, til að mynda frændur okkar í Noregi sem við horfum svo oft til. Þar er ekki rifist um tilvist auðlindarentu þó að mögulega sé hægt að rífast um hversu hátt hlutfall af henni eigi að renna til þjóðarinnar.
Hvað varðar áform um að leita til almennings þá get ég varla orða bundist. Það eru um 100 milljarðar af hagræðingartillögum í þessari áætlun, nákvæmlega eins og þær sem komu úr hagræðingartillögum almennings, sem ríkisstjórnin hefur núna gert að sínum. Það var einmitt tekin ákvörðun um að fá fyrst hóp af fólki til að gera úttekt á þessu, hvað væri raunhæft. Eitthvað var tekið út vegna þess að í lok dags er það pólitíska ábyrgðin sem situr á fagráðherrunum. Fagráðherrarnir segja: Við treystum okkur í þetta en ekki í þetta. Út úr því komu nákvæmlega þær tillögur sem um ræðir og formaður Sjálfstæðisflokksins var að gagnrýna áðan að væri hvergi að finna, en mig grunar að einhver úti í samfélaginu gæti tekið eftir því að þær eru upp á 107 milljarða kr. í þessari fjármálaáætlun. Því er ekki rétt að stilla því upp að það sé ekkert annað verið að gera þar.
Hvað varðar viðbrögð gagnvart Bandaríkjunum þá erum við í virkum samskiptum við okkar fulltrúa þar og erum að halda sjónarmiðum okkar á lofti eins og önnur lönd. Það liggur alveg fyrir.