156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:36]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Mér finnst fara vel á því að byrja þessa ræðu á að óska hæstv. forsætisráðherra til hamingju með þessa áætlun og þjóðinni allri, því að stefnt er að því að hagur ríkisins batni og að hér verði hallalaus fjárlög innan skamms. Því er þetta góður dagur. Þetta er meira en bara leiðarvísir því að við höfum flest með okkur. Við höfum almenning með okkur sem hefur sent inn fjölmargar tillögur og við höfum skilning hjá sveitarfélögunum sem vita að langvarandi hallarekstur leiðir til vaxtakostnaðar. Hér erum við því að skila áætlun sem almenningur, sveitarfélög og ríkisstjórnin styður í heild sinni. Það er einhugur á bak við þessa áætlun. Við ætlum að gera betur en ríkisstjórnin sem fór blessunarlega frá á síðasta ári. Það er einfaldlega svo að andstaðan við þessa áætlun kemur frá stjórnarandstöðunni. Því vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hefur hún áhyggjur af því? Hefur hún áhyggjur af því að við horfum upp á það að stjórnarandstaðan þvælist jafnvel fyrir málum sem hún er sammála og þvælist fyrir málum sem ganga út á að þessi áætlun nái fram að ganga, t.d. að koma í veg fyrir skort á raforku? Við leggjum fram verndaráætlun og það kemur ekkert nema, eins og maður segir, hálfgerð þvæla úr stjórnarandstöðunni og menn leggjast gegn því. Svo horfum við upp á það í þessari umræðu að allar tekjuaflanir ríkissjóðs eru gagnrýndar, jafnvel ómálefnalega. Síðan eru allar sparnaðartillögur líka gagnrýndar. Það væri áhugavert að fá afstöðu hæstv. ráðherra um hvort hún hafi áhyggjur af stjórnarandstöðunni í þessu máli.