156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:38]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta fyrirspurn. Ég trúi ekki öðru en að hér inni sé fólk samstillt og að vilji til verka sé góður. Það er svo, og það vita nær allir hér inni, að í meiri hluta þeirra mála sem fara í gegnum þingið er taflan græn. Við erum sammála um meira en það sem við erum ósammála um. Við skulum halda því á lofti. Við skulum halda heiðri Alþingis á lofti og við skulum líka muna, og þetta getur verið ágæt stund til að minna hv. þingmenn á það, að allt sem er sagt í þessum sal er tekið upp og skrifað niður. Allt sem fólk ræðir hér (Gripið fram í.) — nei, allt sem fólk ræðir hér er sannarlega nóterað niður. Ég hef verið af þeim skóla, og þeir eru margir, að gæði séu betri en magn. Það eru mismunandi skoðanir á því hvernig beri að haga sínum málflutningi. Ég trúi ekki öðru en að sá mikli áhugi sem verið hefur á undanförnum dögum í þinginu snúi einmitt að því að fólk vilji einfaldlega gera vel. Það vill augljóslega ekki fá það orð á sig í samfélaginu að það sé að tefja mikilvæg mál og ég trúi því ekki upp á þessa stjórnarandstöðu, enda þekki ég flest fólk hér inni af mjög góðu og vil tryggja að góð mál komist áfram sem fólk er sammála um.

Varðandi gagnrýni á tekjur og hagræðingu þá eðlilega erum við í pólitík og erum ósammála um pólitík. Ég vil samt segja: Ekkert stórt er auðvelt. Þess vegna gerist sjaldan eitthvað stórt. Hér er verið að reyna að gera nokkra stóra hluti sem hefur ekki tekist að gera í áraraðir. Það er verið að reyna að styrkja innviði landsins, setja aukið fjármagn í að loka afkomuhalla ríkissjóðs. Er það erfitt? Já. Mætir það gagnrýni? Já. Þýðir það að við eigum ekki að gera það? Nei. Ég vil frekar gera eitthvað sem verður gagnrýnt en kemur okkur áfram en að seytla áfram í aðgerðaleysi og halla.