156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:41]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Ég vil taka það fram að ég er nokkuð bjartsýnn á framhaldið. Það sem hefur verið lagt hér fram, sem er óútfært — menn ætlast nú varla til þess að menn fari að færa nákvæmlega rök fyrir og tilgreina bætta innkaupastefnu. Þar eru möguleikar. Við höfum þar möguleika á að gera betur, það er alveg ljóst. Ég er líka sannfærður um að menn eigi að fara varlega í ýmsar sameiningar sem verið er að boða, vegna þess að staðreyndin er sú að þegar farið er í sameiningar þá dettur að einhverju leyti niður framlegð og síðan næst hún vonandi upp á ný.

Ég held að menn geti ekki alveg hlaupið frá því að tala um óábyrgan málflutning. Í gærkvöldi var því haldið fram, í umræðu um frumvarp sem átti að greiða fyrir orkuöflun, að það ætti að leggja það alveg til hliðar því að þetta væri ómögulegt. Staðan væri svo vond sem fyrrverandi ríkisstjórn skildi eftir sig að það væri allt í voða og menn þyrftu jafnvel að fara að byggja kjarnorkuver. Þetta er umræðan sem hefur verið og menn verða bara að horfast í augu við hana. Þau orð féllu hér í ræðustóli. Mér finnst líka rétt að vekja athygli á því þegar menn ætla að fara að selja innviði eins og Leifsstöð í umræðu um það að ná saman í rekstri ríkisins. Það eru tækifæri. Við fengum margar og góðar tillögur frá almenningi og mikill skilningur er fyrir þessu. Ég skynja það líka úti í samfélaginu að fólk er alveg tilbúið að bíða örlítið eftir því að fá fram allar sínar óskir með það fyrir augum að við náum saman í rekstri ríkisins. Það mun bæta reksturinn, lækka vextina og (Forseti hringir.) örugglega minnka verðbólguþrýstinginn og gera ríkisreksturinn auðveldari til framtíðar litið.