156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:43]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég held að við séum ekki komin á þann stað í íslenskri orkuöflun að þörf sé á kjarnorkuveri, ef umræðan var komin á þann stað í gær. Ég ber mikið traust til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem er með skýrt plan um að ráðast reglulega í að leggja fram rammaáætlun, sem er full samstaða um í þessari ríkisstjórn eins og sést af fjölda þeirra mála sem hafa verið afgreidd út á tveimur mánuðum af þessari ríkisstjórn og eru að koma hér inn í þingið og mæta svona góðri meðferð eins og raun ber vitni. Ég er ánægð að þetta sé búið að hvetja til mikillar umræðu hér inni og hvet bara fólk til að sinna sínu hlutverki af ábyrgð hér inni þegar kemur að framkvæmd stórra mála sem síðustu ríkisstjórn tókst ekki sjálfri að afgreiða. Þannig að kannski er komið að því að við gefum því bara góða yfirferð og ég trúi ekki öðru en að fólk sé að nálgast það málefnalega.

Varðandi umræðu um sölu á eignum og þess háttar þá dylst engum mínar skoðanir hvað það varðar. Auðvitað á ríkið ekki að vera að vasast í að eiga eitthvað sem því kemur ekki við og það er ekkert sérstakt markmið hjá ríkinu að eiga einhverjar eignir. Við skulum ekki láta eins og eignasala reddi rekstrargatinu. Það er nú bara hagfræði 101; þú selur eign bara einu sinni. Þú getur ekki rekið þig endalaust á einskiptiseignasölu. Við getum ekki verið með óútfærðar eignasölur eins og síðasta ríkisstjórn var á. Það er einfaldlega þannig, svo ég endurtaki mig sjálfa frá því áðan, að til að gera eitthvað stórt og afgerandi þarf erfiðar ákvarðanir til. Já, það er verið að ráðast í erfiðar ákvarðanir í einhverjum tilvikum hérna. En það er til þess að senda skýr skilaboð til þjóðarinnar um að fólk sé að taka ábyrgð strax í upphafi kjörtímabils til að ná stjórn á ástandinu. Og fólk sýnir því alveg skilning. Það veit alveg að þú færð ekki allt fyrir ekki neitt og þess vegna er þessi fjármálaáætlun eins og hún er.