fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir yfirferðina og óska henni til hamingju með að hafa lagt þessa áætlun hér fram. Ég kannski byrja bara á því að svara hér aðeins hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni. Ég held hann þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af stjórnarandstöðunni og alls ekki missa svefn yfir því, minn kæri. Það er nóg annað í lífinu til að hafa áhyggjur af heldur en stjórnarandstaðan og áhugavert að hlusta á að hv. þingmaður hafði áhyggjur af gagnrýni stjórnarandstöðunnar, sem ég veit að kemur honum mjög í opna skjöldu, að slíkt sé gert á þessu þingi. Eins og forsætisráðherra kom inn á áðan þá er þetta nú allt saman tekið upp þannig að það væri kannski hollt og gott fyrir hv. þingmann að hlusta á sjálfan sig.
En þetta var ekki það sem ég ætlaði að segja. Ég var hér og átti orðastað við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra í morgun varðandi framsetninguna á þessari áætlun og það er það svolítið sem ég hef áhyggjur af. Mig langar aðeins að eyða þessum 47 sekúndum sem ég á eftir hér, vegna þess að ég eyddi allt of miklu í blaður, í raun og veru bara til þess að spyrja hæstv. forsætisráðherra af hverju í ósköpunum þetta er sett fram með þessum hætti. Eins og þetta blasir við mér og okkur þá virðist þetta mjög tæplega standast lög um opinber fjárlög og þær upplýsingar sem við höfum hingað til fengið inni í þessari ágætu áætlun eru teknar í burtu. Við höfum engar upplýsingar um í raun og veru þessa 109 milljarða kr. hagræðingu sem ég vona svo sannarlega að nái fram að ganga með einhverju móti. En við sjáum þess hvergi merki hvar hún er niður komin t.d. Einstaka umfjallanir um málefnasviðin eru svo rýr að við höfum ekki hugmynd um hvað er að fara að gerast á tímabili þessarar áætlunar. Þannig að (Forseti hringir.) þetta er svolítið eins og að vera í veiðimann að fara að spyrja ráðherrana hér á eftir, að reyna að fiska upp úr þeim hvar í ósköpunum við eigum að bera niður.