fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta fyrirspurn. Ég sýni því alveg skilning að það er um breytta framsetningu að ræða. Við hv. þingmaður deildum nú mörgum fundum í hv. fjárlaganefnd þar sem við lágum yfir umræddri fjármálaáætlun. Ég get fullvissað hv. þingmann um að þetta sannarlega stenst lög um opinber fjármál enda hefur það lengi, að mér skilst, verið vilji fjármálaráðuneytisins að reyna að færa fjármálaáætlunina yfir í þetta horf, að þetta verði ekki svona niðurnjörvað eins og þetta var orðið. Vinnsla við fjármálaáætlun var komin á þann stað, eins og ég sagði áður, að það voru haldnir langir ríkisstjórnarfundir um aðgerðir þrjú, fjögur, fimm ár fram í tímann þar sem fólk var að vinna sig upp í öllum minnstu smáatriðum fyrir sín ráðuneyti og tryggja sig langt fram í tímann á sínu og síðan enduðum við með þá niðurstöðu að við vorum með 30 milljarða halla. Það getur sumt verið gott við þá nálgun, þá tryggir þú þínu ráðuneyti eitthvað og passar upp á þinn hlut. En það sem gerist er að stóra myndin tapast sem fjármálaáætlun átti alltaf að vera. Fjármálaáætlun átti ekki að vera fjárlagagerð, það er ráðist í fjárlagagerð á hverju einasta ári. Það sem var byrjað að gerast, og ég veit að hv. þingmaður veit, er að hæstv. ráðherrar voru ítrekað farnir að koma upp í pontu og inn til hv. fjárlaganefndar að segja: Ja, þetta verður endurskoðað í næstu fjármálaáætlun, í næstu fjármálaáætlun verð ég kominn með fjármögnun á þessu. Við vitum alveg að lengi vel stóðst sú fjármálaáætlun ekki þannig að hér er verið að setja stefnumarkandi áætlun fram um hverju verður eytt í hvern og einn málaflokk og síðan er það sett í hendur hvers og eins ráðherra hvernig þeir eyða slíku. Það er meiri ábyrgð en áður, já, en þá er verið að höfða til þess að fólk sé ekki að horfa bara á sinn málaflokk heldur sé partur af teymi í þessu samhengi. En ég átta mig alveg á því að þetta er breytt framsetning. Maður þarf að breyta líka vinnulaginu sínu inni í hv. fjárlaganefnd og það reynir á.