fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir þetta andsvar og ég fagna því í raun og veru vegna þess að hún, hæstv. forsætisráðherra, virðist skilja vandamálið sem mér fannst hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra einhvern veginn ekki gera í umræðunni í morgun. Sú ábyrgð sem er lögð á okkur hér á Alþingi er að fjalla um fjármálaáætlun og hæstv. forsætisráðherra var að tala um skýra heildarsýn sem fjármálaáætlunin á að snúast um; að við sjáum lengra fram í tímann varðandi fjármál ríkisins, hvernig við ætlum að stilla liðinu upp, hvernig við ætlum að stilla okkur upp, hvar áherslurnar eru, hvar mælikvarðarnir og markmiðin eru varðandi einstök málefnasvið. Þess vegna, virðulegur forseti, er afskaplega erfitt að vera hér í dag í umræðu um fjármálaáætlun þar sem ég persónulega er að upplifa það að finnast ég vera svolítið blindur í umræðunni. Dæmi hér í fjármálaáætluninni er kafli um almanna- og réttaröryggi. Þar eru sex línur í lokin um framtíðarsýnina varðandi tölulega skiptingu fjármuna til næstu fimm ára, fimm línur. Þetta er algerlega ógegnsætt. Það er engin leið fyrir okkur sem erum í fjárlaganefnd, það er engin leið fyrir okkur sem erum hér á þingi að reyna að átta okkur á því hver raunverulega stefnan og sýnin er. Það getur vel verið og ég efast ekki um það að hæstv. ráðherrar og hæstv. ríkisstjórn séu búin að púsla þessu saman í hausnum á mér, hvernig þau ætla að gera þetta, og það er bara vel. En við sem erum með áætlunina í vinnslu hjá okkur og þurfum að taka ákvörðun um það hvernig við förum með hana, við sjáum þetta ekki. Mælaborð hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem á að koma núna, þetta gagnvirka mælaborð þar sem þessar upplýsingar liggja allar fyrir, er ekki klárt (Forseti hringir.) og það er bagalegt. Ef það hefði verið samhliða til hefði vinnan verið allt önnur og umræðan öll önnur hér. En þetta er (Forseti hringir.) mjög vont, virðulegur forseti, og ég vildi bara koma þessum áhyggjum mínum áleiðis til hæstv. forsætisráðherra sem ég veit að skilur og þekkir málið.