fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Já, ég hef djúpan skilning á vilja nefndarfólks sem er að fara yfir svona áætlun til að fá eins miklar upplýsingar og mögulegt er. Ég vona innilega að þær kynningar sem fást frá fagráðuneytum bjóði upp á meiri smáatriði ef þörf er á og ég held reyndar að þegar hæstv. fagráðherrar koma hingað í salinn verði tök á slíkri umræðu. Ég verð hins vegar að segja að það hefur því miður verið þannig — og að því leytinu til fannst mér mjög jákvætt skref að það yrði stuðst við þessa breiðu ramma og ekki farið í jafn mikið niðurbrot og áður, þó að það hafi aldrei legið fyrir innan hvers og eins töluliðar. Það var bara upptalning á ákveðnum hlutum. Fólk réð alltaf hvað það setti inn í greinargerð fyrir málefnasviðið sitt. En það er þannig að fjármálaáætlun er ekki frumvarp til laga. Það er ekki skuldbinding til þess að veita þessu inn í þennan málaflokk á hinum staðnum. Þess vegna var alþekkt að það var eitthvað sett inn í fjármálaáætlun sem tók svo breytingum nokkrum mánuðum síðar í aðdraganda fjárlaga. Það sem þarna gerðist, af því að hér er mikið talað um skilvirkni, sparnað í ríkisrekstri, sparnað í vinnu fólks, var að þetta skapaði gríðarlega vinnu inni í ráðuneytum. Þetta skapaði líka vinnu í þinginu, myndi ég segja, af því að umræðan fór úr því að snúast um stóru myndina, um afkomuna, um hvernig stóra myndin innan hvers málefnasviðs var að þróast og fór að snúast um framlög til ákveðinna aðila kannski þremur mánuðum áður en það var sett fram í frumvarpi til laga. Þannig að þetta eru líka breyttar áherslur til þess að nýta í rauninni orku ráðuneyta, orku þingmanna og til þess að vera meira í takt við raunveruleikann, vegna þess að í lok dags var það alltaf þannig að það komu oft stórar breytingar inn í fjárlög að hausti til og fjármálaáætlun var svo endurskoðuð ári seinna. Aðallínurnar ættu að vera skýrar þarna og ég vona innilega að það gangi sem best að tosa meiri smáatriði út úr hæstv. ráðherrum á nefndarfundi.