156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:55]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það sem stendur upp úr í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er ekki skýr framtíðarsýn heldur óljós loforð sem fela í sér verulega áhættu, ekki síst fyrir atvinnulífið í landinu. Þótt talað sé um 100 milljarða í aðhald kemur hvergi fram hvernig á að ná þeim árangri og þegar slíkt aðhald bregst þarf að grípa til annarra leiða. Ríkisstjórnin ætlar að treysta á kerfisbreytingar, frestun verkefna, endurmat forsendna, sameiningar stofnana án útfærslu, án ábyrgðar og án tímasetninga. Samhliða þessu er boðuð aukin tekjuöflun án skýringa á hvaðan þær tekjur eiga að koma. Þetta er í reynd yfirvofandi hækkun skatta og álaga á atvinnulífið sem þegar býr við mikinn kostnaðarþrýsting, háa vexti, launahækkanir og aukið regluverk. Slík nálgun dregur ekki úr ríkisútgjöldum, hún dregur úr verðmætasköpun og framtíð atvinnulífsins. Það er alvarlegt í sjálfu sér en óvissan magnast enn þegar horft er út fyrir landsteinana. Í gær bárust fréttir af því að Bandaríkin hafa ákveðið að leggja 10% toll á íslenskan innflutning. Þetta er raunsæ áminning um hversu brothætt ytra efnahagsumhverfi okkar getur verið. Ef markmið áætlunarinnar eiga að nást má ekkert bresta en reynsla síðustu missera kennir okkur annað. Þegar óvissu er pakkað inn í orð um festu og útfærslu er ekki um stefnu að ræða heldur ábyrgðarleysi dulbúið sem áreiðanleika. Það er glannaskapur með almannafé.