156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[15:57]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég verð nú að segja að þetta kemur eiginlega úr hörðustu átt, þó að ég kunni vel að meta þessa fyrirspurn. Óútfært aðhald upp á 10 til 15 til 20 milljarða kr. Óútfærð eignasala upp á tugi milljarða króna. Það er ekki í þessari fjármálaáætlun. Það var í síðustu fjármálaáætlun. Í þessari fjármálaáætlun er á bls. 59 tafla 3.8 yfir aðhaldsráðstafanir þar sem eru taldar upp nokkrar leiðir að því verki, tímasettar. Það er eins hægt að kynna sér þær hagræðingartillögur sem voru lagðar fyrir ríkisstjórnina þar sem þær eru tímasettar og það kemur frekar sterklega fram á hvaða sviði það er. Það gleður mig líka að nefna að í fjármálaráðuneytinu er nú hópur sem vinnur að eftirfylgd þessara hagræðingartillagna, eins konar sameiningarteymi eða stýrihópur sem á að halda einmitt utan um þetta og tryggja að það verði ekki bara fagráðuneytanna, sem kannski finnst stundum svolítið óþægilegt að ráðast í einhverjar breytingar, heldur að það verði raunveruleg virkniúrræði inni í stjórnsýslunni til að ýta því af stað. Þannig að það er ekki alveg rétt að þetta sé allt án útfærslu. En sannarlega þekkjum við dæmin um slíkt. Það er alþekkt.

Síðan er einnig rætt um að það sé óljóst hvaðan tekjur eiga að koma. Það er heill tekjukafli þar sem fram kemur hvaðan tekjur eiga að koma. Það er talað um bætt skattskil, að loka glufum, fækka undanþágum í skattkerfinu, auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna, veiðigjald, fiskeldisgjald, framtíðartekjuöflunarkerfi fyrir ökutæki og eldsneyti. Þetta er frekar skýrt hérna. Það er enginn að fela neitt í þessari fjármálaáætlun. Það er ekki verið að hækka fyrirtækjaskatta, eins og síðasta ríkisstjórn gerði reyndar, einskiptis. Það er ekki verið að hækka fjármagnstekjuskatta. Það er ekki verið að gera slíkt. Það væri óheiðarlegt að gera það en taka það ekki fram. Það er skýrt hvað á að gera.