fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það er vissulega þannig að afkoman batnaði eftir að hún snarversnaði síðasta haust. Það liggur alveg fyrir að það mat sem kom inn í 2. umræðu fjárlaga fyrir 2025 var mjög vont, mjög vont, og við sáum um 50 milljarða gat núna fyrir jól sem var hræðilegt að horfa upp á. Það gat hafði ekki verið framreiknað út tímabilið sem við fengum síðan að sjá þegar við vorum að mynda ríkisstjórnina. Svo lagaðist það aðeins en það var engu að síður 30 milljarðar. Það er gatið sem hefur lifað og hefði lifað án aðgerða.
Það er ekkert verið að dulbúa neinar skattahækkanir hérna. Við erum enn þá á þeim stað … (Gripið fram í.) — já, og þá þurfum við bara að horfast í augu við það að fólk treystir sér ekki til að tala um hvað auðlindarenta er. Fólk treystir sér ekki til að viðurkenna að það að ríkið stígi inn á sínum tíma og taki úr sambandi þar sem var samkeppni í sjávarútvegi, og flestir voru sammála um að hafi verið eðlileg aðgerð til þess að tryggja umhverfislega sjálfbærni þeirrar greinar, að koma í veg fyrir offjárfestingu, en skapaði gríðarlega arðsemi, umframarðsemi, miklu meiri arðsemi en sést í öðrum atvinnugreinum, að kalla það skatt, við erum ekki sammála um það. Það er svigrúm þarna. Það er vitað mál að þetta mun ekki hafa áhrif á framleiðni þeirra atvinnugreina.
Að öðru leyti þá veit ég ekki hvað hv. þingmaður er að tala hér um. En ég veit alveg, ég þekki auðvitað þessa umræðu og er búin að vera nógu lengi á þingi til að vita hvernig þetta virkar, að það er alltaf verið að reyna að láta eins og við séum bara endalaust að hækka skatta. Það verður bara þannig og ég sætti mig við það. Það þykir bara mjög góð svona árásarlína. Það er ekki verið að hækka skatta á venjulegt vinnandi fólk í þessari áætlun og fólk mun bara finna fyrir því því að í lok dags þá er það eina sem skiptir máli ekki hvað við segjum heldur hvað við gerum og hvernig reikningarnir hjá fólki líta út og fólk mun taka eftir því í lok árs þegar þessi áætlun kemst til aðgerða. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)