156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:04]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsögu um fjármálaáætlunina. Það er auðvitað mikilvægt að ræða þetta út frá öllum hliðum máls og það var ágæt umræða t.d. á vegum hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur í dag um þau áhrif sem innflytjendastraumurinn hefur haft, hvort sem er á innviði eða framtíð opinberra fjármála. Þetta ástand hefur, eins og ég hef margoft komið inn á í ræðustól, minnt okkur á heildarmynd þjóðmenningarinnar í heild sinni. Ég veit að hæstv. forsætisráðherra er svo sem líka umhugað um það, þótt ég minnist þess að vísu að þegar forysta Samfylkingarinnar dirfðist til að máta sig við að nota orðið þjóð í einhverjum átökum í kosningabaráttunni þá fór það illa í einhverja Samfylkingarmenn. En orðið þjóð er til og við erum þjóð. Ég veit að hæstv. forsætisráðherra hefur verið með ágætt framtak í Stjórnarráðinu að mínu mati að leyfa þar íslenska fánanum að blakta við hún öllum stundum, sem mér finnst lofsvert, og mætti svo vera víðar, t.d. í skólum.

Ég vildi kannski leyfa hæstv. forsætisráðherra að spegla aðeins hvernig hann metur þessa fjármálaáætlun með hliðsjón af þessum mikilvægu sjónarmiðum. Hér stendur t.d., með leyfi forseta:

„Þróun og framtíð íslenskrar tungu á tímum örrar alþjóðavæðingar og tæknibyltinga er mikilvæg til að styrkja stöðu þjóðtungunnar.“

Þetta er hálfkláruð setning og gjörsamlega gagnslaus. Manni líður kannski ekki eins og áherslan sé þarna. Ég geri ekki sérstaka kröfu um einhverjar afgerandi yfirlýsingar í svona áætlun en engu að síður tel ég ríkja ákveðið neyðarástand í þessum málum. Hvort tveggja þessi atriði, hvernig við samþættum þetta og hvernig við nýtum — við sjáum að í hæliskerfið og verndarkerfið fóru á árunum 2022–2024 38 milljarðar kr. sem við gætum vafalaust nýtt, t.d. í að ná miklu betur til þeirra hópa (Forseti hringir.) sem hingað eru komnir nú þegar, börnin þar með talin, sem við verðum að gera innan skólakerfisins og er alls ekki að takast.

(Forseti hringir.) Ég kalla eftir skýrri sýn hæstv. forsætisráðherra.