156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:06]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta fyrirspurn. Það er alveg rétt, eins og fram kemur í þessari áætlun, að það fóru tæpir 40 milljarðar í þennan málaflokk. Það eru alls konar ástæður fyrir því. Það er að verða breyting á fjölda fólks sem kemur í gegnum hælisleitendakerfið. Það er auðvitað bara lítill hluti af þeim sem eru innflytjendur hér á landi. Það gleymist oft í umræðunni að meiri hluti þeirra sem eru með erlendan bakgrunn, sumir hverjir tala ekki íslenska tungu, er fólk sem kemur hingað í gegnum EES vegna þess að við auglýsum störf eða það fær einfaldlega dvalarleyfi og kemur hingað út af starfi. Ég sé hins vegar fram á það og við í ríkisstjórninni að breyting verði þarna á vegna þess að búið er að fara og verður farið í markvissar aðgerðir í því skyni að reyna að hraða málsmeðferð í þessum málum. Það hefur verið farið illa með fé að mínu mati; að láta umsagnir hanga of lengi í kerfinu og láta fólk bíða of lengi eftir já- eða nei-svari. Það er óskilvirkt og ómannúðlegt og hefur gert það að verkum að fólk bíður án atvinnu meðan það gæti fengið já og verið í vinnu eða fengið nei og farið úr landi, ef það á ekki kost á því að vera hér undir þeirri löggjöf sem við miðum okkur við. Við höfum verið hlynnt því í þessari ríkisstjórn að teknar yrðu fyrir þær séríslensku reglur sem hafa verið í kerfinu, sem bitna líka á þeim sem sannarlega eiga rétt á að fá vernd hér á landi og komast inn í kerfið, þannig að við náum að inngilda fólk og taka þátt. Það hefur kostað okkur alveg gríðarlega mikinn pening að láta fólk bíða jafn lengi og raun ber vitni og gert það að verkum að þegar fólk loksins kemst í virkni í kerfinu er það kannski seinna af stað og lendir í því að vera ekki eins eða jafn fært og aðrir í tungumálinu. Þarna verður að verða breyting á.